Lagið ber nafnið Ég Sé Þig og er fyrsta rapp og popp lagið sem rapparinn og söngkonan Kristín Ýr sendir frá sér eftir margra ára brotthvarf úr tónlistarheiminum. Í dag starfar Kristín hjá MS og sem yngriflokkaþjálfari hjá Breiðabliki.
Flestir muna eftir Kristínu Ýr úr hljómsveitinni Igore sem gaf út plötuna 9 Líf árið 2004. Hljómsveitin varð gríðarlega vinsæl á stuttum tíma og fljótt kom að því að hún þurfti að velja milli fótboltans og tónlistarinnar og varð boltinn fyrir valinu tímabundið.
Í janúar á þessu ári kom út lagið Kannski Annan dag eins og Vísir greindi frá og segir þar frá því hvernig hún vildi byrja á því að læra að syngja áður en hún færi í að gefa út lögin sín þar sem hún vildi geta haft möguleikann á því að syngja.
Lagið Ég Sé Þig er tekið upp í Studio Bambus en það er eitt af þeim verkefnum sem voru kláruð í Söngsteypunni.
Fæddist á djamminu
Lagið er á léttum nótum og fjallar um samskipti kynjanna á djamminu. Höfundurinn bregður sér í hlutverk partý prinsessunnar sem er karakter sem tekur völdin þegar áfengi er við hönd.„Lagið fæddist þegar ég sat á skemmtistað, var að fylgjast með öllum sætu stelpunum og strákunum að spila þennan leik sem við þekkjum öll. Ég var bara að reyna að læra af fagmönnum. Mér fannst ég ekki eiga séns, en ég er pottþétt alveg eins og þau þegar ég held að ég sé með allt á hreinu um dimma nótt á dansgólfinu í 101,“ segir Kristín létt.
Það var Stefán Örn sem vann lagið í samvinnu við Kristínu Ýr sem er höfundur lags og texta. Lagið er masterað í Bandaríkjunum af Sam Moses.
„Þetta er fyrsta lagið eftir langa pásu en nú er kominn tími til að stíga af alvöru inn í músíkina þar sem mér liður vel og veit að ég á heima í tónlistinni. Það eru mörg lög í vinnslu, bæði á íslensku og ensku. En ég stefni að sjálfsögðu líka á að nýta öll þau erlendu sambönd sem ég hef skapað mér bæði í fótboltaheiminum og annarsstaðar til að reyna að deila gleðinni sem víðast.“
Hér að neðan má hlusta á lagið.