Brasilískur forsetaframbjóðandi stunginn með hníf Atli Ísleifsson skrifar 6. september 2018 20:26 Stuðningsmenn Jair Bolsonaro báru hann í gegnum fjölmenni á götum Juiz de Fora þegar hann var stunginn.
Brasilíski hægrimaðurinn og forsetaframbjóðandinn Jair Bolsonaro var fluttur á sjúkrahús eftir að hann var stunginn í kviðinn með hníf á kosningafundi í Juiz de Fora í Minas Gerais fyrr í dag. Mánuður er nú til kosninga í Brasilíu. Sonur hans, Flavio, segir í tísti að skurðurinn hafi ekki reynst djúpur. Árásarmaðurinn er í haldi lögreglu. Myndband náðist af því þegar Bolsonaro var stunginn þar sem stuðningsmenn hans báru hann í gegnum fjölmenni á götum Juiz de Fora, sem er um 200 kílómetrum norður af Rio de Janeiro.Juiz de Fora, há pouco! pic.twitter.com/Z3M9S1pz6E— Blog do Noblat (@BlogdoNoblat) September 6, 2018 Brasilískir fjölmiðlar segja að Bolsonaro hafi verið búinn skotheldu vesti en að stungusárið hafi verið rétt fyrir neðan vestið. Bolsonaro hefur mælst með næstmest fylgi allra frambjóðenda í könnunum, með um rúmlega tuttugu prósent fylgi. Forsetinn fyrrverandi, Luiz Inácio Lula da Silva, hefur hins vegar mælst með mest fylgi, eða um 35 prósent. Lula hefur verið meinað að bjóða sig fram eftir að hafa verið sakfelldur í tengslum við spillingarrannsókn. Lula hefur áfrýjað dómnum og hyggst halda framboði sínu til streitu.
Brasilía Mest lesið Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Frægasti köttur landsins týndur Innlent Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Innlent Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Erlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Innlent Engar ruslatunnur í Grindavík Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Fleiri fréttir Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Vargöldin á Haítí versnar hratt Tryggja þróunarríkjum 42 billjónir á ári með samkomulagi á COP29 Uppnám á COP29 er fulltrúar þjóða strunsuðu út Vill einn af höfundum „Project 2025“ við stjórn fjárlagaskrifstofu Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Fjögur ungmenni nú látin af völdum tréspírans Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu Hugmynd um banana á vegg seldist á 850 milljónir John Prescott fallinn frá Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Sjá meira