Melo fékk 2,7 milljarða í laun fyrir fimm daga hjá Atlanta Hawks Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. ágúst 2018 23:30 Carmelo Anthony. Vísir/Getty
Carmelo Anthony var aðeins leikmaður NBA körfuboltaliðsins Atlanta Hawks í fimm daga og spilaði ekki einn einasta leik fyrir félagið. Hann fékk engu að síður ríkulega borgað fyrir þessa fimm daga. Atlanta Hawks keypti upp samninginn hans og þurfti að borga Melo 25,5 milljónir dollara fyrir það. Það gerir rúmlega 2,7 milljarða íslenskra króna. Atlanta Hawks hafði fengið samninginn hjá Carmelo Anthony upp í hendurnar í leikmannaskiptum sínum við Oklahoma City Thunder fyrr í sumar. Oklahoma City Thunder losaði sig við Melo til að minnka launaþakskattinn sinn og fékk í staðinn þá Dennis Schröder frá Hawks og Timothé Luwawu-Cabarrot frá Philadelphia 76ers. Carmelo Anthony lék í eitt tímabil með Oklahoma City Thunder en hann kom þangað í leikmannaskiptum við New York Knicks. Anthony var með 22,4 stig að meðaltali í leik á síðasta tímabili sínu með New York en skoraði bara 16,2 stig í leik á síðasta tímabili með Thunder. Stoðsendingarnar fóru líka niður úr 2,9 í 1,3 og þá hitti hann líka verr eða 40 prósent 2017-18 á móti 43 prósent 2016-17. Nú er búist við því að Carmelo Anthony geri eins árs samning við Houston Rockets á svokölluðum „lágmarkslaunum“ enda þarf hann ekki mikið að kvarta eftir launaseðilinn myndarlega frá Atlanta Hawks.
NBA Mest lesið Mun Guðmundur reisa Holland við? Handbolti Einar mölbraut hendurnar á hlaupahjóli en átti magnað EM Sport Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Fótbolti Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Fótbolti Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði“ Sport Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Fótbolti Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Handbolti Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Fótbolti Myndi taka kúlu fyrir Infantino Fótbolti Fleiri fréttir Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjá meira