Pistillinn ber heitið „Danir hafa ekki rétt fyrir sér. Jú, búrkan er kúgandi og fáránleg – en það samt engin ástæða til að banna hana“. Í pistlinum fjallar hann um lög í Danmörku, sem tóku gildi fyrir rúmri viku, sem banna fólki að hylja andlit sitt í almannarýminu. Hann mærir dönsku þjóðina fyrir frjálslyndi og afslappað viðhorf til lífsins og segir það því skjóta skökku við að banna fullorðnu fólki að klæðast því sem það vill.
Það sé fáránlegt að fólk kjósi að líta út eins og póstkassar
Þrátt fyrir að tala gegn banninu var umfjöllun hans um búrku og niqab ansi fjálgleg.„Ég myndi ganga svo langt að segja að það sé algjörlega fáránlegt að fólk kjósi að líta út eins og póstkassar,“ segir Johnson sem bætir við að ef kona myndi mæta í viðtalstíma til hans með andlitið hulið myndi hann ekki veigra sér við að biðja hana um að fjarlægja andlitsblæjuna til að geta „talað almennilega við hana“.
Þá segir hann jafnframt: „Ef kvenkyns nemandi myndi mæta í skóla eða á fyrirlestur í háskólanum klædd eins og bankaræningi þá ætti það sama við um hana. Skólayfirvöld ættu að geta talað opinskátt við þá sem þeim er gert að leiðbeina,“ segir Johnson.

Gæti komist í vandræði innan flokksins
Eric Pickles, fyrrverandi ráðherra Íhaldsflokksins, segir að það gæti farið svo að Johnson kæmist í vonda stöðu innan flokksins ákveði einhver flokksmannanna að leggja fram formlega kvörtun vegna umfjöllunar Johnson.„Íhaldsflokkurinn hefur margvíslega verkferla og ef einhver leggur fram formlega kvörtun þá fer af stað formlegt ferli.“
Pickles segir þó að það sé frekar ólíklegt að Johnson verði gert að yfirgefa flokkinn en bætir við að það sé aldrei að vita hvernig málin þróist.

Augljóst að Johnson hafi sært með ummælum sínum
Theresa May, forsætisráðherra landsins, hefur hvatt Johnson til að biðjast afsökunar vegna þess að ummælin hafi augljóslega sært og móðgað fólk.„Það sem er mikilvægt í þessu er að við trúum á rétt fólks til að iðka trú sína, og þegar kemur að konum og búrkum og niqab, að þær hafi rétt til þess að velja sjálfar hvernig þær vilja klæða sig,“ segir May.

Vill að opinberar manneskjur geti sagt skoðanir sínar
Nigel Farage, fyrrverandi leiðtogi Breska sjálfstæðisflokksins UKIP, er ósammála forsætisráðherranum og biðlar til Johnson að standa fastur á sínu. Honum beri ekki skylda til að biðjast afsökunar á því að segja sína raunverulegu skoðun.„Vaknar þá stór spurning: Mega opinberar persónur fá að segja sína raunverulegu skoðun án þess að vera úthrópaðar og þess krafist af þeim að þær biðjist afsökunar? Ég veit ekki hvað Boris ætlar að gera því hann hefur áður beðist afsökunar á ummælum sínum,“ segir Farage.
Það sé hans skoðun að Johnson ætti að standa fastur á því það sé stór hópur venjulegs fólks sem sé sama sinnis.