Alan Alda með parkinsonsveiki Kjartan Kjartansson skrifar 31. júlí 2018 19:03 Alda segist hafa ákveðið að segja frá veikindum eftir að hann tók eftir að hægt var að sjá þumalfingur hans kippast til í viðtölum sem hann hefur veitt nýlega. Því hefði aðeins verið tímaspursmál hvenær sagt yrði frá veikindum hans. Vísir/EPA
Bandaríski leikarinn Alan Alda sem kunnastur er fyrir hlutverk í sjónvarpsþáttunum „M*A*S*H“ hefur greint frá því að hann glími við parkinsonsveiki. Alda, sem er 82 ára gamall, segist hafa verið greindur með sjúkdóminn fyrir rúmum þremur árum og hafa lífað góðu lífi með honum. Leikarinn sagði frá veikindum sínum í morgunþætti CBS-sjónvarpsstöðvarinnar í dag. Þetta er í fyrsta skipti sem hann segir opinberlega frá þeim. „Ástæðan fyrir að ég vil tala um það opinberlega er að ég hef lifað fullnægjandi lífi síðan þá,“ sagði Alda sem æfir meðal annars hnefaleika þrisvar í viku. Parkinsonsveiki er heilahrörnunarsjúkdómur en honum getur fylgt skjálfti, erfiðleikar með hreyfingu, talmein og minnisglöp. Alda lék Benjamin Franklin „Hawkeye“ Pierce liðsforingja í sjónvarpsþáttaröðinni „M*A*S*H“ frá 1972 til 1983. Síðar lék hann forsetaframbjóðanda í „Vesturálmunni“ og var tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir hlutverk sitt í myndinni „Flugmaðurinn“ árið 2005.NEW: Actor @AlanAlda just revealed he has Parkinson's disease. The award-winning actor says he was diagnosed with the disease three and a half years ago. https://t.co/cYba2YKewS (via @CBSThisMorning) pic.twitter.com/OpIUBvCKWi— CBS News (@CBSNews) July 31, 2018
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Fleiri fréttir Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Sjá meira