Það var fólk á öllum aldri og af öllum kynjum samankomið á fyrri tónleikum Írafárs á laugardag. Allt frá ömmum og öfum, 101 hipsterum og niður í fólk sem hefur líklega verið í fyrstu bekkjum grunnskóla þegar hljómsveitin hætti árið 2005.

Á meðan troðfullur Eldborgarsalur kom sér fyrir var sýnt slide-show af gömlum myndum af sveitinni. Myndir úr matarboðum, hinni frægu ferð sveitarinnar til Flórída og áður óséðar myndir úr myndatökum. Og svo slokknuðu ljósin, tónlistin byrjaði, tjaldið féll og þarna voru þau.
Birgitta Haukdal var alltaf óumdeilanlega stjarna hljómsveitarinnar og varð fyrirmynd nánast heillar kynslóðar ungra íslenskra stúlkna. Og hún var sannarlega skærasta stjarnan á sviðinu í Eldborg. Bókstaflega, í glitrandi glimmersamfesting.

Spennan var á sínum stað, aðdáunin á söngkonunni sú sama og öskrin, maður minn. Helsti munurinn er líklega að núna eru aðdáendur Írafárs allir komnir með aldur til að versla áfengi og stemningin því aðeins öðruvísi.
Sveitin hefur greinilega engu gleymt. Flutningurinn var þéttur og falleg vinátta Birgittu og Vignis ennþá áberandi. Nokkrir tæknilegir örðugleikar komu upp í byrjun en sveitin skautaði í gegnum þá af mikilli snilld.
Birgitta hlýtur þó að teljast einhver einlægasti flytjandi landsins og sagði salnum frá ef eitthvað klikkaði. „Aldrei segja frá mistökum,” heyrðist þá frá Vigni.
Oftar en einu sinn spurði Birgitta „Er ekki gaman?!“ og það var erfitt að sjá hver skemmti sér betur, hljómsveitin á sviðinu eða fólkið úti í sal.

Jón hoppaði og skoppaði um sviðið eins og fulltrúi áhorfenda, hreinlega gat ekki hamið sig, loksins kominn á svið með Írafári. Þetta er stöff sem gerist bara í dagdraumum.
Ég vil ekki vera svona, ekki sitj’ og bíð’ og vona því ég vil bara vera ég sjálfÞað voru fataskipti og gítarsóló og trommusóló, danssporin hennar Birgittu og þrettán ár af spennu aðdáenda sem fengu útrás í hrópum eins og „Ég elska þig Birgitta!“ og „Viggi þú ert bestur!“
Og að íslenskum sið var einn vinahópur fyrir miðjum sal sem var ögn hressari en rest. Það voru bara tveir hlutir sem vantaði. Annars vegar Eurovision lag Birgittu, Open Your Heart, og hins vegar hinar goðsagnakenndu útvíðu mjaðmabuxur og blómaskreytingin í hárið. Annars var yfir litlu að kvarta.

„Röddin hennar! Hún syngur ennþá svo vel!”
„Þetta var fullkomið“
„Ég er að fara á Jay-Z og Beyoncé og það mun ekki toppa þetta!“
Og á götuhornum öskursöng fólk Írafár og landslið Íslands í fótbolta, sem er á leið á heimsmeistarsmótið, náði ekki að fylla Laugardalsvöllinn. Hetjur PoppTíví kynslóðarinnar voru nefnilega annars staðar í bænum þetta kvöld.
Að neðan má sjá myndband á bak við tjöldin á laugardaginn.