Coventry kemur enn á ný við sögu þegar BBC fjallar um íslenska fótboltalandsliðið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. júní 2018 15:00 Það var gaman hjá íslenska landsliðinu á EM 2016. Vísir/Getty
BBC hefur tekið saman myndband um íslenska fótboltalandsliðið í tilefni af komandi heimsmeistaramóti í Rússlandi. Ísland er með í fyrsta sinn og verður fámennasta þjóðin til að taka þátt í HM í fótbolta. BBC fjallar um uppkomu íslenska landsliðsins og enn á ný er borg á miðju Englandi nefnd til sögunnar þegar kemur að fjalla um íslenska landsliðið. Coventry er 350 þúsund manna borg austur af Birmingham en fótboltalið borgarinnar Coventry City F.C. vann sér sæti í ensku C-deildinni eftir 3-1 sigur á Exeter City í umspilsleik á Wembley. BBC hefur oft borið saman Ísland og Coventry og það er engin breyting á því. Auðvitað koma líka Víkingaklappið, árangurinn á EM og sigurinn á enska landsliðinu við sögu. BBC-menn eru því ekki að flytja nein fjöll í umfjöllun sinni. BBC fékk líka viðtal við Helga Kolviðsson, aðstoðarþjálfara íslenska landsliðsins, en hann var í Skype-viðtali úr höfuðstöðvum KSÍ í Laugardalnum. Helgi ræddi aðeins um undirbúninginn og fékk nokkrar dæmigerðar spurningar. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast myndbandið um íslenska fótboltalandsliðið.World Cup debutants Iceland are hoping to show they can compete against the world's best in Russia.https://t.co/G80jy7h2vcpic.twitter.com/QgPZQAgjsL — BBC Sport (@BBCSport) June 4, 2018
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjá meira