Brynjar skilur eftir sig magnaða tölfræði og mörg met sem leikmaður KR Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júní 2018 13:25 Brynjar Þór Björnsson og Darri Hilmarsson lyfta Íslandsbikarnum á dögunum. Vísir/bára
Körfuboltamaðurinn Brynjar Þór Björnsson hefur yfirgefið KR og samið við Tindastól í Domino´s deild karla eins og fram kom á Vísi fyrr í dag. Fyrirliði Íslandsmeistaraliðs KR undanfarin fimm ár hefur slegið flest virtustu metin á tíma sínum í Vesturbænum og hann skilur eftir sig magnaða tölfræði. Tímabilið í vetur var það þrettánda sem Brynjar spilar með KR í úrvalsdeildinni en hann lék eitt ár sem atvinnumaður í Svíþjóð og var einnig hálft tímabil við nám í Bandaríkjunum. Fyrsta tímabil Brynjars var tímabilið 2004-05. Hann vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil 2007 og hefur undanfarin fimm ár lyft ellefu stórum bikunum sem fyrirliði KR-liðsins. Brynjar eignaðist stigametið hjá KR í úrvalsdeild karla í vetur en það var áður í eigu Guðna Guðnasonar. Brynjar hafði áður slegið leikjametið. Tölfræði Brynjars í úrslitakeppninni er síðan algjörlega sér á báti hjá KR. Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir helstu tölfræði Brynjars sem leikmanns KR í efstu deild karla í körfubolta.Ferill Brynjars Þórs Björnssonar hjá KR í tölum: 13 tímabil í úrvalsdeild 75,8 prósent sigurhlutfall í úrvalsdeild (194 sigrar - 62 töp) 68,4 prósent sigurhlutfall í úrslitakeppni úrvalsdeildar (78 sigrar - 36 töp) 13,1 stig að meðaltali í leik í úrvalsdeild 11,9 stig að meðaltali í leik í úrslitakeppni úrvalsdeildarFerillinn í nokkrum staðreyndum: 370 leikir með KR á Íslandsmóti (úrvalsdeild+úrslitakeppni) 4704 stig í leikjum með KR á Íslandsmóti (úrvalsdeild+úrslitakeppni) 870 þristar í leikjum með KR á Íslandsmóti (úrvalsdeild+úrslitakeppni) Tíu 200 stiga tímabil með KR í úrvalsdeild (deildarkeppni) Sjö 50 þrista tímabil með KR í úrvalsdeild (deildarkeppni) 8 Íslandsmeistaratitlar 6 deildarmeistaratitlar í úrvalsdeild 3 bikarmeistaratitlar Hefur fimm sinnum lyft ÍslandsmeistarabikarnumNokkur met sem Brynjar Þór Björnsson á líka hjá KR í úrvalsdeild: 256 leikir fyrir KR í úrvalsdeild 3353 stig fyrir KR í úrvalsdeild 620 þristar fyrir KR í úrvalsdeild 194 sigurleikir spilaðir með KR í úrvalsdeild 114 leikir fyrir KR í úrslitakeppni úrvalsdeildar 1351 stig fyrir KR í úrslitakeppni úrvalsdeildar 250 þristar fyrir KR í úrslitakeppni úrvalsdeildar 78 sigurleikir spilaðir með KR í úrslitakeppni úrvalsdeildar
Dominos-deild karla Mest lesið Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn „Takk fyrir ástina“ Fótbolti Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Stóru liðin á eftir Kroupi Enski boltinn Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Strand Larsen skoraði tvö þegar Norðmenn unnu Svía þægilega Fótbolti HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Fótbolti Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Sektaður um átta milljónir fyrir karlrembu Sport Fleiri fréttir Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Sjá meira