FM Belfast fengið greitt fyrir Iceland Airwaves Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 23. maí 2018 11:15 Frá tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves. vísir/ernir
Meðlimir FM Belfast hafa nú fengið greitt fyrir að spila á Iceland Airwavest 2017. Hljómsveitin greinir frá þessu á Twitter-síðu sinni og segir jafnframt að allir tónlistarmenn sem áttu eftir að fá greitt hafi fengið kröfur sínar greiddar.Við fengum loksins greitt fyrir @icelandairwaves 2017 og okkur skilst að allir tónlistamenn sem áttu eftir að fá greitt hafi fengið sínar kröfur greiddar. Takk fyrir að standa með okkur í þessu kæru vinir— FM Belfast (@fmbelfast) May 23, 2018 Meðlimir FM Belfast höfðu undanfarið látið óánægju sína í ljós á samfélagsmiðlinum með að hafa ekki fengið greitt fyrir að spila á tónlistarhátíðinni síðastliðið haust og meðal annars varað aðra listamenn við því að spila ekki á hátíðinni nema gegn því að fá greitt fyrirfram.Sjá einnig:Meðlimir FM Belfast óánægðir vegna vangreiddra launa frá Iceland Airwaves Eggert B. Ólafsson, lögmaður, sem hefur séð um nauðasamninga fyrir rekstrarfélagið IA tónlistarhátíð ehf., sem fór í þrot fyrr á árinu, segir að FM Belfast og öðrum listamönnum sem áttu kröfur í félagið hafi verið greitt að fullu. Um fimm til sex aðila var að ræða sem voru með lágar kröfur en höfðu sent reikninga inn seint, að sögn Eggerts. Spurður út í hvað séu lágar kröfur í þessu samhengi segir Eggert að kröfurnar hafi hlaupið nokkrum tugum þúsunda og upp í 200 til 300 þúsund. „Þetta er meginreglan þegar það eru frjálsir samningar að þeir sem eru með lágar kröfur þeir fá greitt að fullu en þeir sem eru með kröfur upp á milljónir þeir fá hlutfall,“ segir Eggert. Að sögn Eggerts er samningum vegna þrots IA tónlistarhátíðar ehf. að ljúka. Það var ÚTÓN sem stofnaði IA tónlistarhátíð ehf. árið 2010 en rekstur hátíðarinnar síðastliðin tvö ár var afar þungur og skilaði milljóna tapi. Úr varð að Sena Live tók yfir rekstur hátíðarinnar og IA tónlistarhátíð ehf. var sett í þrot. Semja þurfti í kjölfarið um skuldir gamla rekstaraðilans við tónlistarmenn og aðra starfsmenn hátíðarinnar. Tónlistarhátíðin heldur sama nafni en Sena Live heldur nú utan um reksturinn. Fyrirtækið keypti annars vegar eignir hátíðarinnar úr gamla rekstrarfélaginu og síðan vörumerki hátíðarinnar af Icelandair. Uppfært klukkan 16:10: Fréttin var uppfærð eftir athugasemd frá Senu Live.
Tengdar fréttir Iceland Airwaves kynnir fjörutíu ný atriði Iceland Airwaves hefur tilkynnt um fjörutíu nýja listamenn sem munu koma fram á tónlistarhátíðinni í byrjun nóvember. 26. apríl 2018 14:30 Iceland Airwaves kynnir fyrstu listamennina til leiks Iceland Airwaves hefur nú tilkynnt fyrstu böndin sem koma fram á hátíðinni sem fram fer 7.-10. nóvember. 26. mars 2018 16:30 Meðlimir FM Belfast óánægðir vegna vangreiddra launa frá Iceland Airwaves Meðlimirnir hafa viðrað þessa óánægju á samfélagsmiðlinum Twitter þar sem þeir hafa varað aðra listamenn við því að spila ekki á hátíðinni nema gegn því að fá greitt fyrir fram. 18. maí 2018 14:04 Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Sjá meira
Iceland Airwaves kynnir fjörutíu ný atriði Iceland Airwaves hefur tilkynnt um fjörutíu nýja listamenn sem munu koma fram á tónlistarhátíðinni í byrjun nóvember. 26. apríl 2018 14:30
Iceland Airwaves kynnir fyrstu listamennina til leiks Iceland Airwaves hefur nú tilkynnt fyrstu böndin sem koma fram á hátíðinni sem fram fer 7.-10. nóvember. 26. mars 2018 16:30
Meðlimir FM Belfast óánægðir vegna vangreiddra launa frá Iceland Airwaves Meðlimirnir hafa viðrað þessa óánægju á samfélagsmiðlinum Twitter þar sem þeir hafa varað aðra listamenn við því að spila ekki á hátíðinni nema gegn því að fá greitt fyrir fram. 18. maí 2018 14:04