Arnór Ingvi fór meiddur af velli í tapi Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 13. maí 2018 17:31 Arnór Ingvi fagnar fyrsta markinu sem hann skoraði fyrir Malmö. vísir/getty
Arnór Ingvi Traustason fór meiddur af velli í fyrri hálfleik í tapi Malmö fyrir Trelleborgs í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Arnór fór út af á 41. mínútu í stöðunni 0-0. Lasse Nielsen skoraði sigurmark Trelleborgs undir lok venjulegs leiktíma. Óttar Magnús Karlsson sat allan leikinn á varamannabekk Trelleborgs. Á heimasíðu Malmö segir að Arnór Ingvi hafi meiðst á ökkla, þeim sama og hann hafi áður glímt við meiðsli á. Þar segir einnig að hann hafi verið of þjáður til þess að halda áfram en strax hafi verið hafist handa við endurhæfingu og bíða verði og sjá hvernig hún muni ganga.41' Arnór Ingvi Traustason tvingas kliva av på grund av skada. Bonke Innocent ersätter.#TFFMFF | 0–0 — Malmö FF (@Malmo_FF) May 13, 2018 Arnór Ingvi er einn þeirra 23 leikmanna sem Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari valdi í lokahópinn fyrir HM í Rússlandi í sumar. Arnór Smárason, sem er einn af þeim tólf leikmönnum sem eru til taks að koma inn í lokahópinn, kom inn sem varamaður í seinni hálfleik í sigri Hammarby á Örebro. Jiloan Hamad skoraði sigurmarkið stuttu eftir að Arnór kom inn á en gestirnir frá Hammarby voru einum leikmanni fleiri í um klukkutíma eftir að Kennedy Igboananike fékk að líta rauða spjaldið á 39. mínútu leiksins.Fréttin hefur verið uppfærð með nánari upplýsingum um meiðsli Arnórs
Fótbolti á Norðurlöndum HM 2018 í Rússlandi Tengdar fréttir Svona lítur 23 manna HM hópur Heimis út Albert Guðmundsson er í 23 manna lokahóp Heimis Hallgrímssonar sem fer á HM í Rússlandi en Kolbeinn Sigþórsson er ekki í hópnum. 11. maí 2018 13:45
Svona lítur 23 manna HM hópur Heimis út Albert Guðmundsson er í 23 manna lokahóp Heimis Hallgrímssonar sem fer á HM í Rússlandi en Kolbeinn Sigþórsson er ekki í hópnum. 11. maí 2018 13:45
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti