Belgískur trúður sakaður um grimmilegt morð Samúel Karl Ólason skrifar 15. maí 2018 15:31 Kevin Lapeire. Facebook
Einn af skærustu trúðum Belgíu, Kevin Lapeire, hefur verið handtekinn og er hann grunaður um að hafa myrt fyrrverandi kærustu sína. Hann var í beinni útsendingu á Facebook þar sem hann var vopnaður skammbyssu á húsþaki, umkringdur lögregluþjónum. Hann gafst upp eftir um fjögurra klukkustunda umsátur og eftir að hann skaut ítrekað í loftið. Lapeire varð frægur þegar hann tók þátt í Belgium‘s Got Talent og vann hann til verðlauna sem besti trúður Belgi. Hinum 31 árs gamla trúði er gert að hafa bundið þrjú börn kærustu sinnar, 12 ára, 15 ára og 17 ára, áður en hann myrti móður þeirra með hnífi. Þau höfðu hætt saman nokkrum dögum áður, samkvæmt Guardian.Þá mun hann hafa hringt í skóla barnanna og sagt að þau yrðu sein næsta dag og sent skilaboð úr síma konunnar til yfirmanns hennar um að hún myndi ekki mæta til vinnu. Morðið mun hafa átt sér stað á sunnudaginn, sem einnig var mæðradagur, og naut Lapeire aðstoðar annars manns sem einnig keppti í Belgium‘s Got Talent. Í frétt Telegraph segir að Lapeire hafi virst njóta athyglinnar á húsþakinu. Hann á að hafa þóst gefast upp nokkrum sinnum áður en hann var handtekinn.Lapeire er einn af fimm atvinnutrúðum Belgíu og naut hann mikilla vinsælda. Hann skemmti börnum á sjúkrahúsum undir nafninu Doctor Aspirin og starfaði sem umboðsmaður fyrir fimmtán aðra skemmtikrafta.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Erlent Fleiri fréttir Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda Sjá meira