Bandaríkjamenn bíða með barneignir Stefán Ó. Jónsson skrifar 17. maí 2018 08:44 Bandaríkjamönnum mun þó ekki fækka á næstunni. Vísir/Getty
Fæðingartíðni í Bandaríkjunum hefur ekki verið lægri í 30 ár. Telja vísindamenn það til marks um að Bandaríkjamenn séu farnir að bíða lengur með barneignir en þekkst hefur til þessa Rúmlega 3,85 milljón börn fæddust í Bandaríkjunum í fyrra en færri börn hafa ekki fæðst vestanhafs á einu ári síðan árið 1987. Stærsta ástæðan er rakin til færri barneigna meðal unglinga og kvenna á þrítugsaldri. Hins vegar fjölgaði barneignum kvenna á aldrinum 40 til 44 ára. Fjölgunin var þó ekki nógu mikil til að vega upp á móti fækkuninni í fyrrnefndu aldurshópunum. Það var þó ekki aðeins fæðingartíðnin, hversu mörg börn fæðast fyrir hverja þúsund íbúa, sem var lág í Bandaríkjunum í fyrra. Frjósemisstuðull bandarískra kvenna, mælikvarðinn á það hvað þær munu eignast mörg börn að meðaltali á lífsleiðinni, var 1.76 á síðasta ári. Hann hefur ekki verið jafn lágur síðan árið 1978. Lægri fæðingartíðni er, á vef breska ríkisútvarpsins, rakin til aukinnar velmegunar vestanhafs. Þrátt fyrir það telja vísindamenn litlar líkur á því að Bandaríkjamönnum muni fækka á næstu áratugum eða að aldurssamsetning þjóðarinnar kúvendist.
Mest lesið Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Innlent Fleiri fréttir Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Sjá meira