Tugir íþróttamanna enn týndir Stefán Ó. Jónsson skrifar 18. maí 2018 06:04 Arcangeline Fouodji Sonkbou er meðal þeirra sem saknað er eftir Samveldisleikana. Vísir/Getty
Enn hefur ekkert spurst til tuga íþróttamanna sem hurfu á Samveldisleikunum sem fram fóru í Ástralíu fyrir rúmum mánuði síðan. Fjöldi íþróttamanna sem er saknað er mjög á reiki. Fyrst bárust fregnir af því að átta liðsmenn kamerúnska hópsins hefðu látið sig hverfa en fjöldinn hefur aukist hratt á síðustu vikum. Líklegt er nú talið að fjöldi þeirra týndu sé á bilinu 20 til 100 manns. Í þeim hópi eru þó ekki aðeins íþróttamenn heldur einnig þjálfarar og aðstandendur nokkurra afrískra landsliðshópa. Áströlsk stjórnvöld hafa hótað að senda fólkið úr landi því vegabréfsáritunin þeirra rann út á þriðjudaginn. Hins vegar sé þeim heimilt að vera áfram í landinu hyggist þeir sækja um hæli í Ástralíu. Uppákomur sem þessar eru alls ekkert einsdæmi og segir breska ríkisútvarpið að hvörf sem þessu séu orðin algengur fylgifiskur alþjóðlegra íþróttaviðburða. Þannig hafi til að mynda 21 keppandi og þjálfari horfið þegar Ólympíuleikarnir stóðu yfir í Lundúnum árið 2012. Þar að auki hafi um 80 íþróttamenn sótt um hæli í Bretlandi. Ástralar hafa að sama skapi fengið að kynnast sambærilegum málum á síðustu árum. Á Samveldisleikunum árið 2006 voru til að mynda 40 keppendur sem ýmist hurfu eða sóttu um hæli í Ástralíu. Áströlsk stjórnvöld hafa ekki viljað gefa upp hvað þeim hafa borist margar hælisumsóknir í tengslum við síðustu Samveldisleika. Tuttugu og tvöþúsund hælisumsóknir voru þó samþykktar í Ástralíu á síðasta ári, þar af hlutu rúmlega 1200 manns frá Afríku hæli í landinu.
Mest lesið Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Bíll hafnaði í Kópavogstjörn Innlent Niðurrif ónýtra húsa í Grindavík hafið Innlent Landbúnaðarstefna ESB henti íslenskum landbúnaði illa Innlent Fleiri fréttir Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Sjá meira