Stal kreditkorti foreldra sinna og ferðaðist einsamall til Balí Stefán Ó. Jónsson skrifar 23. apríl 2018 07:05 Drengurinn komst einn og óstuddur frá Ástralíu til Indónesíu. A current affair
Tólf ára ástralskur drengur stal kreditkorti foreldra sinna, plataði ömmu sína í að afhenda honum vegabréfið sitt og ferðaðist síðan einsamall til Bali. Drengurinn, sem kallaður er Drew í umfjöllun ástralska fréttaskýringaþáttarins A Current Affair, er sagður hafa rifist við foreldra sína, sem tjáðu honum að hann mætti ekki fara til Bali, sama hvað hann tautaði. Þá tók hann til sinna ráða og nappaði kreditkorti foreldra sinna. Því næst fór hann á netið og fann út úr því hvaða flugfélög leyfðu 12 ára börnum að fljúga ein. Svo keypti hann flugmiðana með kreditkortinu og bókaði sig inn á hótelbergi á Bali. Í stað þess að fara í skólann morguninn eftir settist Drew upp á rafmagnshjólið sitt og brunaði á næstu lestarstöð. Þaðan ferðaðist hann á flugvöllinn og skráði sig sjálfur inn í flugið sem flutti hann til Perth og í tengiflugið sem fór með hann alla leið til Indónesíu. Aðeins einu sinni á leiðinni var hann spurður út í ferðalagið sitt. Það gerði flugvallastarfsmaður í Perth sem vildi vita hvort hann væri raunverulega 12 ára gamall. Útibú Guardian í Ástralíu hefur fengið það staðfest að jú, hinn 12 ára gamli Drew komst í alvöru einn og óstuddur til Bali.Móðir drengsins segir að ekkert orð geti lýst því hvernig foreldrunum leið eftir að þau heyrðu að drengurinn væri á Bali.A currrent affairÍ samtali við A Current Affair segir Drew að ferðalagið hafi verið frábært, hann hafi í raun alltaf dreymt um að lenda í ævintýri. Þegar hann var kominn til Bali fór hann rakleiðis á hótelið þar sem hann tjáði starfsfólkinu að hann væri að bíða eftir systur sinni. Eftir að skóli Drew sagði foreldrum hans að hann hafi ekki mætt þann morguninn komust þeir fljótt að því að drengurinn hafi notað kortið þeirra. Því ákvað móðir hans að hoppa upp í næstu vél til Indonesíu og ná í drenginn. Í samtali við A Current Affair segir móðir hans, sem sögð er heita Emma, að drengurinn eigi erfitt með að fá neitun. Því hafi hann brugðist ókvæða við þegar foreldrar hans tjáðu honum að þau væru ekki á leiðinni til Bali á næstunni. „Lost, ógleði. Það er engin tilfinning sem lýsir því nógu vel hvernig okkur leið þegar við komust að því að hann væri stunginn af,“ segir Emma.
Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Sjá meira