Göturnar í tónlistinni Stefán Þór Hjartarson skrifar 10. apríl 2018 05:15 Það er ávallt ys og læti í Austurstræti og ekki að furða að menn semji lög um þessa fallegu götu. Vísir/GVA
Um daginn sendi Emmsjé Gauti frá sér lagið Lágmúli ásamt rapparanum Birni. Lagið fjallar, að einhverju leyti, um samnefnda götu með sérstakri tilvísun í Snóker- og poolstofuna sem er þar til húsa í númer fimm. Það er ekki oft sem lög eru tileinkuð götum í íslenskri dægurtónlist, miklu frekar eru heilu bæjarfélögin nefnd eða jafnvel einstök hverfi lofsömuð. XXX Rottweiler hundar hafa til að mynda minnst nokkrum sinnum á Árbæinn, en það hverfi var í árdaga rapptónlistar á Íslandi nokkuð vinsælt yrkisefni, enda virtust margir úr því blessaða hverfi leiðast út í rappið. Einnig hefur Blaz Roca verið duglegur að tala um Kópavoginn, en það hefur lærisveinn hans, Herra Hnetusmjör, einnig verið.Meistari Laddi Eitt frægasta lag Ladda var Austurstræti, en það fjallar þráðbeint um þessa stórskemmtilegu götu þar sem, eins og Laddi nefnir svo réttilega í laginu, er alltaf ys og læti. Eitthvað er reyndar búið að fækka þessum bönkum sem hann talar um en hins vegar má líklega enn finna þar „lassaróna“ og „snobbaðar kerlingar“. Talandi um Ladda, þá á hann einnig lagið Upp undir Laugarásnum, þar sem hann fjallar um „eitt lítið kot“ sem hann á þar í hverfinu. Yfir textanum er hógvær blær þó að hann lýsi þvílíku ríkidæmi sem megi finna í „kotinu“ – tennisvöllur á þakinu, sautján salerni, fatageymsla full af kamel- og kattaskinnsklæddum flíkum. Laugarásinn var auðvitað, og er enn, heimili efnaðri íbúa borgarinnar, en það grínast meistari Laddi með í þessu lagi eins og honum einum er lagið.Borgarskáldið Tómas Guðmundsson orti auðvitað talsvert um Reykjavík og ber kannski hæst þegar hann gefur skít í Forboðnu borgina í Kína í samanburði við vorkvöld í Vesturbænum í gríðarlega rómantísku ljóði. Hann skrifaði einnig Fyrir átta árum sem Haukur Morthens söng eftirminnilega og er svo gríðarlega sorglegt að það er erfitt að rifja það hér upp. Ljóðið gerist við Laufásveginn og Fríkirkjuna, það ægifagra svæði í Reykjavík sem fleiri hafa gert sér mat úr.Fröken Reykjavík borðar gyros Lag sem margir hafa spreytt sig á, og þarna förum við á kunnuglegar slóðir – jú, Austurstræti og Tjörnin, svipaðar slóðir og Laddi og Tómas voru á. Persónugerving Reykjavíkur trítlar um á þessum slóðum, íbúum úthverfanna líklega til mikillar mæðu – af hverju sér ljóðmælandi hana ekki á röltinu í Fellunum eða að koma út af gríska veitingastaðnum í Spönginni?Aðalgata Ameríku KK söng eftirminnilega um Þjóðveg 66 á sínum tíma. Annað gríðarlega sorglegt lag og í þetta sinn um fátækt fólk í Ameríku á vesturleið. The King Cole Trio, hljómsveit Nats King Cole, flutti lag Bobby Troup um sama þjóðveg árið 1946 en þessi sögufrægi vegur hefur verið kallaður Aðalgata Ameríku eða „the Mother Road“. Vegurinn liggur þvert yfir Bandaríkin og er hvorki meira né minna en tæpir 4.000 km að lengd, byrjar í Chicago og endar í Santa Monica í Kaliforníu.Brúsi frændi Fyrst við erum komin til Bandaríkjanna, þar sem hafa verið ótal lög um hinar og þessar götur, enda nóg af þeim í því landi, má nefna að eitt helsta, og mögulega besta, lagið um amerískar götur hlýtur að vera Streets of Philadelphia með Bruce Springsteen en auk þess er myndbandið alveg ótrúlegt.Gátan um OK Computer ráðin Frægustu götur tónlistarsögunnar eru svo líklega annars vegar Penny Lane og hins vegar Abbey Road, gerðar frægar af Bítlunum. Svo er kannski rétt, svona í lokin, að minnast á götuna á plötuumslagi OK Computer með Radiohead, en glöggur aðdáandi sveitarinnar telur að um sé að ræða gatnamót nokkur í Connecticut-ríki, nánar tiltekið í borginni Hartford, en þarna mætast hraðbrautir númer 84 og 91. Stórkostlegur staður.Detta þér í hug fleiri lög um götur? Við hvetjum lesendur til að bæta við listann í athugasemdum.
Birtist í Fréttablaðinu Tónlist Mest lesið Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Lífið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Leikarinn Sam Neill er látinn Lífið „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Tónlist Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun Fleiri fréttir Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Sjá meira