Leikjavísir

GTA V er arðvænasta skemmtanaafurð sögunnar

Samúel Karl Ólason skrifar
Grand Theft Auto V hefur halað inn rúmlega sex milljörðum dala en framleiðsla hann kostaði einungis 265 milljónir.
Grand Theft Auto V hefur halað inn rúmlega sex milljörðum dala en framleiðsla hann kostaði einungis 265 milljónir. Take Two
Leikurinn Grand Theft Auto V er arðvænasta skemmtanaafurð sögunnar. Rúmlega 90 milljónir eintaka hafa selst og Take Two, framleiðendur leiksins, hafa þénað um sex milljarða dala af honum. Framleiðslukostnaður leiksins var 265 milljónir dala og er hann dýrasti tölvuleikur sem hefur verið gerður. Þrátt fyrir að leikurinn hafi fyrst komið út árið 2013 er hann enn að seljast vel. Leikurinn er til að mynda enn ofarlega á lista Steam yfir mest seldu leikina.

Gta V var sjötti söluhæsti leikurinn í Bandaríkjunum í fyrra. Hann var í þriðja sæti í Evrópu.

Samkvæmt greiningu Market Watch hefur GTA V slegið öllum söluhæstu kvikmyndum heimsins við og rúmlega það. Star Wars og Gone With The Wind höluðu báðar rúmlega þrjá milljarða dala inn, með tilliti til verðbólgu, og jafnvel þegar tekið er tillit til sölu DVD-diska og áhorfs á efnisveitum, eru tekjuhæstu myndir heimsins ekki með tærnar þar sem GTA V er með hælana.



Auk þess að hagnast á sölu eintaka af leiknum hefur Take Two haldið áfram að uppfæra leikinn og þá sérstaklega fjölspilunarhluta hans. Þar geta spilarar varið peningum til að kaupa hluti í leiknum og hefur fyrirtækið hagnast verulega á því yfir árin.

Þar að auki var leikurinn fyrst gefinn út á PS3 og Xbox 360 og var hann síðar uppfærður fyrir nýja kynslóð leikjatölva og fyrir PC tölvur. Fjölmargir hafa því keypt sér tvö eða jafnvel þrjú eintök af leiknum.

Greinendur Market Watch segja að líklegast sé GTA V einsdæmi og hæpið sé að einhverjir aðrir leikir muni ná þessum árangri.

 


Tengdar fréttir

Mörg dæmi um að foreldrar kaupi GTA V fyrir börn sín

Mörg dæmi eru um að börn komi í fylgd foreldra til að tryggja sér eintak af ofbeldisfullum tölvuleik sem nú tröllríður afþreyingar-bransanum. Framkvæmdastjóri Skífunnar segist aldrei hafa séð slíkar vinsældir.

GTA V: Kynslóðabilið brúað

GTA V var líklega besti leikur síðustu kynslóðar leikjatölva og sá vinsælasti. Uppfærð útgáfa af leiknum fyrir XBOX One og PS4 er einfaldlega flottari, betri í alla staði. Þetta er þrekvirki framleiðandans Rockstar sem virðist ekki geta tekið rangar ákvarðanir.

GTA 5 kostaði 32,6 milljarða króna

Tölvuleikir standa nú jafnfætis kvikmyndum, sjónvarpsefni og teiknimyndum í afþreyingariðnaði. Kostnaður við nýjasta Grand Theft Auto leikinn eru svipaður og við dýrustu kvikmyndir heims. Tekjumöguleikar eru aftur sagðir enn meiri. Halað var inn fyrir kostnaði í forsölunni einni.

Óstöðvandi velgengni GTA V

Grand Theft Auto V hefur selst í tæplega 52 milljón eintökum og framleiðendur leiksins hafa hagnast gífurlega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.