Þrír bestu leikir Danero á tímabilinu eru leikirnir þrír þar sem Ryan var í banni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. apríl 2018 13:00 Danero Thomas. Vísir/Andri Marinó
Danero Thomas tók heldur betur upp hanskann fyrir Ryan Taylor á meðan Bandaríkjamaðurinn var í þriggja leikja banni í úrslitakeppni Domino´s deildar karla í körfubolta. ÍR vann tvo af þremur leikjum án Ryan Taylor og þar geta Breiðhyltingar þakkað Danero Thomas fyrir frábæra spilamennsku. ÍR-liðið jafnaði metin í undanúrslitaeinvíginu á móti Tindastól með 106-97 sigri á Króknum í gær. Danero Thomas var með 28 stig, 9 fráköst, 7 stolnir bolta, 6 þrista og 6 stoðsendingar í leiknum í gærkvöldi. Í þessum þremur leikjum ÍR-liðsins án Ryan Taylor var Danero Thomas með 34 að meðaltali í framlagi en hann var með 30 í heildarframlag í fyrstu þremur leikjum ÍR-liðsins í úrslitakeppninni. Leikirnir þrír án Ryan Taylor eru líka þrír bestu leikir Danero Thomas í Domino´s deildinni á tímabilinu ef við skoðum framlagstölurnar. Danero hækkaði meðaltöl sín um 14,0 stig og 7,2 fráköst að meðaltali í leik í fjarveru Ryan Taylor og Danero var með 19,9 hærra framlag í leik í þessum þremur leikjum en í öllum hinum leikjum ÍR í vetur. Hér fyrir neðan má sjá frekari útlistun á magnaðri frammistöðu Danero Thomas á meðan Ryan Taylor var í leikbanni.Hæsta framlag í einum leik hjá Danero Thomas í Domino´s deildinni í vetur: 35 á móti Tindastól í úrslitakeppninni (Leikur 2) 34 á móti Stjörnunni í úrslitakeppninni (Leikur 4) 33 á móti Tindastól í úrslitakeppninni (Leikur 1) 24 á móti Grindavík í deildinni (heimaleikur) 23 á móti Stjörnunni í úrslitakeppninni (Leikur 3) 22 á móti Val í deildinni (útileikur) 21 á móti Stjörnunni í deildinni (útileikur) 20 á móti Tindastól í deildinni (útileikur) 20 á móti Haukum í deildinni (útileikur) 20 á móti Grindavík í deildinni (útileikur)Hversu miklu meira gerði Danero Thomas í fjarveru Ryan Taylor:Framlag í leik (+19,9) Fyrir bann Ryan Taylor: 14,1 Í leikbanni Ryan Taylor: 34,0Stig í leik (+14,0) Fyrir bann Ryan Taylor: 14,4 Í leikbanni Ryan Taylor: 28,3Fráköst í leik (+7,2) Fyrir bann Ryan Taylor: 5,8 Í leikbanni Ryan Taylor: 13,0Stoðsendingar í leik (+0,9) Fyrir bann Ryan Taylor: 2,8 Í leikbanni Ryan Taylor: 3,7Stolnir boltar í leik (+0,7) Fyrir bann Ryan Taylor: 2,7 Í leikbanni Ryan Taylor: 3,3 ---Fyrsti leikur Ryan Taylor í banni (71-69 sigur á Stjörnunni) Danero Thomas með 34 í framlag Sigurkarfan 24 stig 21 frákast 3 stoðsendingar 2 stolnir boltar 3 varin skotAnnar leikur Ryan Taylor í banni (82-89 tap fyrir Tindastól) Danero Thomas með 33 í framlag 33 stig 9 frák0st 2 stoðsendingar 1 stolinn boltarÞriðji leikur Ryan Taylor í banni (106-97 sigur á Tindastól) Danero Thomas með 35 í framlag 28 stig 9 frák0st 6 stoðsendingar 7 stolnir boltar
Dominos-deild karla Mest lesið Yfirgaf æfingaferð Marseille í áfalli Fótbolti Vann hálft maraþon, fæddi barn og varð svo meistari í heilu maraþoni Sport Næst yngsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Sport Tilfinningaþrungin stund þegar Magnús Máni kom í mark Sport Guðlaugur Victor til Danmerkur á ný Fótbolti Magnaður sigur Dags í Vestratreyju: „Núna er bara stefnan sett á ÓL“ Sport Orðinn langþreyttur á glímunni við Útlendingastofnun Fótbolti Keflvíkingar létu mörkunum rigna gegn Völsungi Fótbolti Sjálfsmark í blálokin bjargaði Börsungum Fótbolti Elísa langfyrst fyrir Magnús Mána: „Þessi dagur er fyrir hann“ Sport Fleiri fréttir Tap í síðasta leik fyrir EM „Lukkudýrið“ í mál við félagið ÍR-ingar sækja Grikkja á Álftanesið: „Sannkallaðar gleðifréttir“ Brotnaði saman þegar hann bar liðsfélögum tíðindin Faðir Boston Celtics stjörnu handtekinn fyrir morðtilraun Yngri Agravanis-bróðirinn í Stjörnuna Beittu sér fyrir keppnisbanni Ísraela: „Ekki fengið nógu marga með okkur í lið“ Yfirlýsing KKÍ: Hætta ekki við leikinn við Ísrael Almar var kominn alla leið til Bandaríkjanna Haukur Helgi meiddur og Almar kallaður inn í hópinn Nánast allar treyjur uppseldar fyrir EM Erfitt að horfa á félagana detta út Craig Pedersen um erfitt val á EM-hóp: „Frábært vandamál að glíma við“ Forseti Íslands hvatti landsliðið til dáða Giannis loksins mættur en Grikkirnir neita að útskýra fjarveruna Svona er hópur Íslands sem fer á EM Keflavík semur við Breta: „Þekktur fyrir öfluga nærveru í teignum“ Manchester heimsækir Síkið og Tindastóll fer til fjögurra landa Mögulegt áfall fyrir Slóvena í aðdraganda EM Tryggvi lét mest til sín taka í tapi gegn Portúgal Khalil Shabazz til Grindavíkur Fyrsti sigur á Svíum í 33 ár og feðgar í aðalhlutverki í báðum Eiginkonan líkir þjálfara Slóvena við Gosa Keflavík fær bandarískan framherja Misstu Martin út en sneru leiknum og unnu Svía Jaka skilinn eftir og þrettán leikmenn berjast um hin tólf sætin Með fyrsta þrjátíu tuttugu leikinn í sögu WNBA Ótryggður Giannis tekur ekki þátt í undirbúningi Grikklands Þjóðverjar unnu Doncic lausa Slóvena Pólland missir NBA stjörnu fyrir Eurobasket Sjá meira