Ótrúlegar tölur Sigtryggs Arnars á síðustu 194 mínútum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. mars 2018 13:00 Sigtryggur Arnar Björnsson. Vísir/Eyþór
Sigtryggur Arnar Björnsson fór enn á ný á kostum í Grindavík í gærkvöldi þegar Tindastólsliðið komst í 2-0 í einvígi liðanna í átta liða úrslitum úrslitakeppni Domino´s deildar karla í körfubolta. Sigtryggur Arnar skoraði 26 stig á tæpum 25 mínútum í gær en hann hitti úr 62 prósent skota sinna í leiknum. Sigtryggur Arnar er að spila í gegnum nárameiðsli sem hafa haldið honum frá mörgum leikjum á nýju ári en þegar hann er leikfær þá virðist enginn eiga möguleika í Stólana. Tindastóll vann þær mínútur, sem Sigtryggur Arnar spilaði í Grindavík í gær, með sautján stigum. Þetta þýðir að í síðustu sjö leikjum hans með Tindastól í öllum keppnum er liðið +121 með hann inná vellinum. Sigtryggur Arnar hefur spilað í 194 mínútur í þessum leikjum og er með 151 stig á þeim eða nálægt því að vera með eitt stig á mínútu. Allir sex leikirnir hafa unnið þar af þrír á móti Grindavík og tveir á móti KR. Sigtryggur Arnar hefur hitt úr 50 prósent þriggja stiga skotum sínum í leikjunum og er auk stiganna með 36 fráköst, 27 stoðsendingar og 15 stolna bolta á þessum 194 mínútum.Síðustu sex leikir Sigtryggs Arnars með Tindastól:Deildarleikur við Val 15 stig á 21 mínútu (Liðið +18 með hann inná) Hitti úr 3 af 9 þriggja stiga skotum (33%)Bikarleikur við Hauka 35 stig á 36 mínútum (Liðið +16 með hann inná) Hitti úr 6 af 10 þriggja stiga skotum (60%)Bikarúrslitaleikur við KR 20 stig á 27 mínútum (Liðið +20 með hann inná) Hitti úr 5 af 8 þriggja stiga skotum (63%)Deildarleikur við Grindavík 18 stig á 26 mínútum (Liðið +25 með hann inná) Hitti úr 4 af 6 þriggja stiga skotum (67%)Deildarleikur við KR 13 stig á 28 mínútum (Liðið +11 með hann inná) Hitti úr 3 af 7 þriggja stiga skotum (43%)Leikur eitt við Grindavík í úrslitakeppni 24 stig á 31 mínútu (Liðið +14 með hann inná) Hitti úr 4 af 10 þriggja stiga skotum (40%)Leikur tvö við Grindavík í úrslitakeppni 26 stig á 25 mínútun (Liðið +17 með hann inná) Hitti úr 4 af 8 þriggja stiga skotum (50%)
Dominos-deild karla Mest lesið Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Fleiri fréttir Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Tryggvi Snær og félagar aftur á sigurbraut Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Líktu Álftanesi við Bayern München Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum Óvænt truflun í Njarðvík „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur „Erfitt að koma í þetta hús og sækja sigur“ Reikna með Kane en vita ekki hvenær „Menn eru að reyna að vera með ábyrgan rekstur“ 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ „Þetta eru alvöru hermenn“ „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ „Annars er mér bara fokking drullusama“ Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Sjá meira