Corden með tilfinningaþrungna ræðu um byssulöggjöfina í Bandaríkjunum Stefán Árni Pálsson skrifar 21. febrúar 2018 15:45 Corden er einn vinsælasti spjallþáttastjórnandi heims.
Hinn 19 ára Nikolas Cruz skaut minnst sautján manns til bana í Marjory Stoneman Douglas skólanum í Flórída fyrir viku síðan. Hann var handsamaður af lögreglu um klukkustund eftir árásina og hefur Cruz verið ákærður fyrir sautján morð. Cruz gekk inn í fyrrverandi skólann sinn og skaut þar úr hálfsjálfvirkum riffli af gerðinni AR-15 og er um að ræða mannskæðustu skotrárásina í skóla í Bandaríkjunum í fimm ár. Breski spjallþáttastjórnandinn James Corden tók byssulöggjöfina í Bandaríkjunum fyrir í tilfinningaþrunginni ræðu í þætti sínum í gær. Corden bar saman tölfræði í tengslum við skotárásir og byssueign í heiminum og eru tölurnar sláandi eins og hann bendir á. „Þegar ég flutti til Bandaríkjanna fyrir þremur árum þá datt mér aldrei í hug að ég þyrfti að tala svona oft um skotárásir og fjöldamorð,“ sagði Corden. Corden sagði sögu frá því að árið 1996 voru 16 ungmenni drepin í grunnskóla í Skotlandi. „Eftir það voru lögin hert í tengslum við byssueign og það hefur ekki komið upp tilfelli um skotárás í skóla á Bretlandseyjum síðan.“
Mest lesið Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit Lífið Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Lífið Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Lífið Sonur Mari og Njarðar fæddur Lífið Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti Tónlist „Ég vil vera bestur í öllu“ Lífið Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Lífið Opnar sig um þunglyndi og depurð Lífið Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Lífið Fyrsta platan í tuttugu ár Lífið Fleiri fréttir Sonur Mari og Njarðar fæddur Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun Sjá meira