Designers Nest hönnunarkeppnin fór fram í Kaupmannahöfn þann 30. janúar. Keppnin er haldin tvisvar á ári milli tíu fremstu hönnunarskólanna á Norðurlöndunum í tengslum við tískuvikuna í Kaupmannahöfn. Þrír nemendur er valdir til þátttöku úr hverjum skóla og að þessu sinni fóru frá Listaháskóla Íslands María Nielsen, Kristín Karlsdóttir og Guðjón Andri Þorvarðarson. María segir þátttöku í keppni sem þessari dýrmæta reynslu fyrir ungan hönnuð.


„Dómnefndin er skipuð átta manns sem öll tengjast tísku- og hönnunarheiminum og hver hönnuður fékk einungis fimm mínútur. Það þurfti því að skipuleggja sig vel. Þetta var rosalega stressandi. Auðvitað hefur maður margoft staðið fyrir framan kennarana og kynnt verkin sín í skólanum en hér heima er þetta ekki svo stór heimur og maður hefur hitt það fólk oft. En þarna stóð ég fyrir framan ókunnugt fólk, mikilsmetið í faginu, og bunaði út úr mér kynningunni. En þetta gekk vel,“ segir María.

„Við hittum módelin snemma um morguninn og mátuðum á þau fötin. Svo var haldin æfing en sýningin fór fram í lok dags. Eins og alltaf tekur hún ekki nema korter, eftir allan undirbúninginn. Þetta er mikil keyrsla en allt gekk rosalega hratt fyrir sig. Flest módelin voru með fjórar innkomur. Hönnuðirnir voru því á hlaupum baksviðs en stemmingin var frábær og allir hjálpuðust að. Ég er með danskt eftirnafn og allir héldu að ég væri dönsk, kannski hjálpaði það til, það töluðu allir dönsku við mig, sem var fínt.“

„Útgangspunkturinn við vinnslu línunnar var hin fullkomna húsmóðir og afbökun á þeirri ímynd. Ég skoðaði húsmæðraímyndina um 1960, hvað sú ímynd er orðin blætistengd í dag. Ég bar það saman við bindingar í nútímanum og það kemur fram í böndum á flíkunum og í ýmsum smáatriðum í flíkunum.“

„Það á eftir að koma í ljós. Það er fyrst og fremst undir manni sjálfum komið hvernig maður nýtir sér þetta tækifæri. Eftir sýninguna á ég bunka af nöfnum sem tengjast inn í þennan bransa og einnig er þetta gott á ferilskrána. Ég útskrifaðist frá LHÍ síðasta vor og mig langar til þess að flytja út í mastersnám. Danmörk og Svíþjóð eru þar efst á lista.“