Lífið

Fékk bækur, rós og peninga

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Henrik á auðvelt með að sjá hluti fyrir sér og koma þeim í orð. Svo er fótboltinn mikið áhugamál.
Henrik á auðvelt með að sjá hluti fyrir sér og koma þeim í orð. Svo er fótboltinn mikið áhugamál. Vísir/Vilhelm
Henrik Hermannsson sigraði í ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs með ljóði sínu Myrkrið sem nú hefur verið dreift um bæinn á veggspjöldum og bókamerkjum, ásamt ljóðum tveggja stúlkna sem urðu í 2. og 3. sæti. Hann er nemandi í 7. bekk Hörðuvallaskóla.



Hermann, gerir þú mikið að því að yrkja? Nei, þetta ljóð var bara skólaverkefni.

Nú segir það mikla sögu. Er hún byggð á eigin upplifun? Nei, þetta var bara eitthvað sem mér datt í hug. Ég sá þetta bara fyrir mér. 

Hvað fékkstu í verðlaun? Ég fékk bækur, rós og peninga.

Í hverju ertu bestur í skólanum? Ég er örugglega bestur í íslensku en mér finnst stærðfræðin skemmtilegri. Svo er ég líka góður í ensku og dönsku.





Hver eru helstu áhugamálin? Fótbolti. Ég æfi með Breiðabliki, í 4. flokki, er miðjumaður í liðinu.

Hefurðu eitthvað ferðast? Já, bæði innanlands og til útlanda.

Hver er skemmtilegasta ferð sem þú hefur farið í? Ég held þegar ég fór til Englands núna um daginn, við fórum á tvo fótboltaleiki með uppáhaldsliðinu mínu, Manchester United, móti Southampton og Everton, það gerði jafntefli í öðrum og vann hinn.

Af hverju heldurðu með Man­chester United? Bróðir minn byrjaði að halda með því.

Hvernig leikur þú þér helst? Við vinirnir erum mikið úti í bolta, bæði fótbolta og körfubolta.

Hefurðu einhvern tíma verið í hættu staddur? Kannski pínu. Ég var í útlöndum og við vorum að fara í lest, þá var geitungur að sveima akkúrat í dyrunum og ég þorði ekki inn en hurðin var byrjuð að lokast og pabbi tosaði mig inn. Svo vorum við einu sinni veðurteppt uppi á Holtavörðuheiði í brjáluðum snjóbyl. En það komu björgunarsveitir og ferjuðu okkur og fleira fólk í Reykjaskóla í Hrútafirði.

Farið þið stundum norður? Já, ég á ömmur og afa á Sauðárkróki og nágrenni, við förum oft að heilsa upp á þau. Önnur amma mín á heima á Meyjarlandi á Reykjaströnd. Hún á kindur, geitur og hesta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.