Barnasprengja í Hollywood á árinu sem er að líða Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 18. desember 2017 20:00 Fátt fallegra en nýfædd börn. Vísir / Skjáskot af Instagram
Það voru mörg stjörnubörnin sem komu í heiminn á árinu sem er að líða og er það mikil blessun. Lífið ákvað að taka saman þá frægu foreldra sem urðu þeirrar lukku aðnjótandi að eignast börn á árinu 2017. Benjamin og Natalie.Vísir / Getty Images Ballerínubörn Stórleikkonan Natalie Portman og eiginmaður hennar, franski ballettdansarinn Benjamin Millepied, eignuðust sitt annað barn saman, dótturina Amaliu, í febrúar á þessu ári. Natalie og Benjamin kynntust við tökur á kvikmyndinni Black Swan og byrjuðu saman árið 2009. Ári síðar tilkynntu þau trúlofun sína og eignuðust sitt fyrsta barn, soninn Aleph, í júní árið 2011. Árið 2012 gengu þau síðan í það heilaga. Helen og Pharrell.Vísir / Getty Images Fjölgaði í fjölskyldunni um þrjá Tónlistarmaðurinn Pharrell Williams eignaðist þríbura í janúar með eiginkonu sinni, Helen Lasichanh. Fyrir áttu þau Pharrell og Helen soninn Rocket Williams, sem fæddist árið 2008, en lagið Rocket’s Theme úr teiknimyndinni Despicable Me var samið til heiðurs honum. Pharrell og Helen hafa verið saman um árabil og giftu sig þann 12. október árið 2013. Jimmy og Billy litli.Vísir / Getty Images Kraftaverkabarn Spjallþáttastjórnandinn Jimmy Kimmel eignaðist son með eiginkonu sinni, Molly McNearney, í apríl 2017. Snáðinn, sem hefur fengið nafnið Billy, átti erfiðar fyrstu vikur og gekkst undir stóra hjartaaðgerð nokkrum mánuðum eftir að hann kom í heiminn. Jimmy tók sér viku frí frá sjónvarpinu af þessum sökum en fyrr í þessum mánuði mætti hann með Billy í þáttinn, Jimmy Kimmel Live! Var það afar tilfinningaþrungin stund og þakkaði Jimmy öllu starfsfólki sjúkrahússins í Los Angeles fyrir þá meðferð sem sonur hans hefur fengið síðustu mánuði. Billy er fjórða barn Jimmy. Hann á dótturina Katharine, 26 ára, og soninn Kevin, 24 ára, með fyrrverandi eiginkonu sinni, Gina Maddy. Þá eiga þau Molly einnig dótturina Jane sem kom í heiminn árið 2014, ári eftir að þau Jimmy og Molly gengu í það heilaga. A post shared by Billy Joel (@billyjoel) on Oct 23, 2017 at 7:35pm PDT Lengi lifir í gömlum glæðum Goðsögnin Billy Joel, sem fagnaði 68 ára afmæli sínu á árinu, eignaðist sitt þriðja barn, dótturina Remy Anne, þann 22. október. Billy eignaðist Remy með fjórðu eiginkonu sinni, Alexis Roderick, sem er 35 ára, en fyrir áttu þau dótturina Della Rose, sem kom í heiminn í ágúst árið 2015. Billy á einnig dótturina Alexa Ray Joel, 32 ára, með annarri eiginkonu sinni, Christie Brinkley. Bradley og Irina.Vísir / Getty Images Frumburðurinn fæddur Leikarinn Bradley Cooper og ofurfyrirsætan Irina Shayk eignuðust sitt fyrsta barn í mars, dótturina Lea De Seine. Bradley og Irina hefur verið saman síðan í apríl 2015 og hafa sögusagnir verið uppi þess efnis að þau séu trúlofuð. Ekkert hefur verið staðfest í þeim efnum. Rosalind og Mel.Vísir / Getty Images Níunda barnið fætt Leikarinn Mel Gibson, sem verður 62ja ára í janúar á næsta ári, eignaðist soninn Lars Gerard með kærustu sinni, Rosalind Ross, í janúar síðastliðnum. Þetta er hvorki meira né minna en níunda barn leikarans. Hann á sjö börn með fyrrverandi eiginkonu sinni, Robyn Denise Moore, eina dóttur, Hannah, 37 ára, og sex syni: Edward, 35 ára, Christian, 35 ára, William, 32 ára, Louis, 29 ára, Milo, 27 ára og Thomas, 18 ára. Þá á hann dótturina Luciu, 8 ára, með fyrrverandi kærustu sinni, Oksönu Grigorieva. Benedict og Sophie.Vísir / Getty Images Tveir synir í leiklistarfjölskyldu Leikarinn Benedict Cumberbatch og eiginkona hans, leikstjórinn Sophie Turner, eignuðust annað barn sitt í mars, soninn Hal Auden. Fyrir áttu hjóninn soninn Cristopher sem fagnaði tveggja ára afmæli sínu í ár. Benedict og Sophie trúlofuðu sig í nóvember árið 2014 eftir sautján ára vináttu og giftust í febrúar ári síðar. Joanna og Andy.Vísir / Getty Images Sprelligosi fjölgar sér Grínistinn Andy Samberg og tónlistarkonan Joanna Newsom eignuðust sitt fyrsta barn, heilbrigða stúlku, í ágúst. Joanna og Andy trúlofuðu sig í febrúar 2013, eftir fimm ára samband, og giftu sig í september sama ár. A post shared by Serena Williams (@serenawilliams) on Nov 6, 2017 at 5:09am PST Á eftir barni kemur brúðkaup Tennisstjarnan Serena Williams og Alexis Ohanian, einn af stofnendum samfélagsmiðilsins Reddit, eignuðust dóttur þann 1. september síðastliðinn. Er þetta fyrsta barn parsins. Serena og Alexis trúlofuðu sig í desember í fyrra og gengu í það heilaga nokkrum vikum eftir fæðingu dótturinnar, eða þann 16. nóvember síðastliðinn. Meðal gesta í brúðkaupinu voru Beyoncé, Kelly Rowland og Kim Kardashian West. A post shared by David Arquette (@davidarquette) on Jun 23, 2017 at 12:33pm PDT Heiðrar látna systur Leikarinn David Arquette eignaðist soninn Augustus Alexis Arquette II með eiginkonu sinni, Christinu, í mars. Þetta er annað barn hjónanna, sem giftust árið 2015, en fyrir áttu þau son sem varð þriggja ára á árinu. David tilkynnti það á samfélagsmiðlum að millinafn nýja barnsins, Alexis, væri í höfuðið á systur leikarans, Alexis Arquette, sem lést í september 2016. Þá á David einnig dótturina Coco með leikkonunni Courteney Cox, sem kom í heiminn árið 2004. A post shared by Janet Jackson (@janetjackson) on Apr 14, 2017 at 6:17pm PDT Ólétt á miðjum aldri Söngkonan Janet Jackson vakti heimsathygli þegar hún tilkynnti að hún væri með barni, fimmtug að aldri. Einkasonurinn, sem hlaut nafnið Eissa, kom í heiminn í janúar en faðir hans er athafnamaðurinn Wissam Al Mana. Stuttu eftir að snáðinn kom í heiminn, skildu þau Wissam og Janet eftir fjögurra ára hjónaband. A post shared by Jaime Pressly (@jaimepressly) on Jun 7, 2017 at 9:04am PDT A post shared by Jaime Pressly (@jaimepressly) on Oct 23, 2017 at 2:00pm PDT Tvíburalukka Leikkonan Jaime Pressly eignaðist tvíbura með kærasta sínum, Hamzi Hijazi, í október sem hlotið hafa nöfnin Leo og Lenon. Jaime og Hamzi hafa verið saman um árabil en fyrir á leikkonan soninn Dezi James Calvo, tíu ára, með fyrrverandi unnusta sínum, DJ Eric Calvo. A post shared by Tori Spelling (@torispelling) on Oct 29, 2017 at 5:54pm PDT Barnaskarinn stækkar Beverly Hills 90210-stjarnan Tori Spelling og eiginmaður hennar, Dean McDermott, buðu fimmta barn sitt velkomið í heiminn í mars, soninn Beau. Fyrir áttu þau Liam, 10 ára, Stellu, 9 ára, Hattie, 6 ára og Finn, 5 ára. Fyrir átti Dean soninn Jack, 19 ára, með fyrrverandi eiginkonu sinni, Eustace. Tori og Dean gengu í það heilaga þann 7. maí árið 2006 á Fiji. Þau endurnýjuðu síðan heitin í maí árið 2010. A post shared by Liam Payne (@liampayne) on Aug 24, 2017 at 3:09am PDT A post shared by Cheryl (@cherylofficial) on Mar 25, 2017 at 1:25pm PDT Söngelskur snáði One Direction-söngvarinn Liam Payne og tónlistarkonan Cheryl Cole eignuðust sitt fyrsta barn í mars, heilbrigðan son. Þetta er fyrsta barn þeirra beggja en þau byrjuðu að stinga saman nefjum í byrjun árs 2016.
Fréttir ársins 2017 Tengdar fréttir Þegar ástin ber að dyrum: Pörin sem byrjuðu saman á árinu Örvar Amors hafa hitt marga í hjartastað í Hollywood á árinu sem er að líða. 17. desember 2017 14:00 Blessað barnalánið: Frægir fjölga sér árið 2017 Margar af skærustu stjörnum Íslendinga hafa verið svo lánsamar að eignast börn á árinu. 13. desember 2017 19:30 Mest lesið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Lífið Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lífið Bautista hleypur í skarðið Bíó og sjónvarp Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Sjá meira
Þegar ástin ber að dyrum: Pörin sem byrjuðu saman á árinu Örvar Amors hafa hitt marga í hjartastað í Hollywood á árinu sem er að líða. 17. desember 2017 14:00
Blessað barnalánið: Frægir fjölga sér árið 2017 Margar af skærustu stjörnum Íslendinga hafa verið svo lánsamar að eignast börn á árinu. 13. desember 2017 19:30