„Ég gerði mestu mistök ævi minnar fyrir ekki alls löngu. Ég fékk mér húðflúr með nafni þáverandi kærasta. Hvar get ég látið taka þetta **** af mér? #égveit#ekkiorð.“
Heimildir Vísis herma að Ellý hafi látið húðflúra gælunafn Steingríms, Denni, á líkama sinn með hans rithönd. Þegar Vísir hafði samband við Ellý vildi hún ekkert tjá sig um sambandsslitin, né húðflúrið en hún leitar nú lifandi ljósi að stað til að fjarlægja verkið.

Kona á þínum virðulega aldri!
Eins og gefur að skilja hafa viðbrögðin ekki látið á sér standa. Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason lætur í sér heyra í athugasemdum við færsluna, greinilega hneykslaður.„Kona á þínum virðulega aldri!” segir Egill. Það stendur ekki á svörunum hjá Ellý.
„live or die... kannast þú ekki við tilfinninguna? Ástin og þokan í kringum það allt.... ég var þar þá,“ skrifar Ellý. Á öðrum stað í athugasemdakerfinu er Ellý á einlægum nótum.

Aðspurð um hvað spilin hafi sagt, enda Ellý rómuð spákona, svarar Ellý:
„Spilin sögðu run baby run…“

Ertu fjórtán ára?
Fjölmiðlamaðurinn Börkur Gunnarsson hrósar Ellý fyrir að hafa óbilandi trú á ástinni, þó uppátæki hennar sé barnalegt að hans mati.„Neeeei, Ellý, ertu fjórtán ára? Samt svolítið sætt að vera orðin miðaldra og fá svona óbilandi trú á ástina. Það er eiginlega mjög sætt,“ skrifar Börkur, en Ellý er hvergi bangin.
„Ég trúi ennþá ástina og er ekki búin að missa vonina. Ég trúði því innilega að hann væri sá rétti. Ég veit kjánalegt…“

Rétt - ekki mistök
Skáldkonunni og fyrrverandi forsetaframbjóðandanum Elísabetu Kristínu Jökulsdóttur finnst aðeins of mikil geðshræring einkenna þráðinn og skrifar: „Það er enginn dauður, slakaðu á“, á meðan þúsundþjalasmiðurinn Dofri Hermannsson stappar stálinu í Ellý. „Kæra Ellý. Þú ert þversumman af öllu sem þú hefur gert. Ef næsti kærasti skilur það ekki er hann ekki sá rétti fyrir þig.“Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri samtaka fjármálafyrirtækja og fyrrverandi Alþingiskona, biðlar til Ellý um að hætta við að láta fjarlægja húðflúrið og breyta því í annað verk í staðinn.
„Elsku Ellý mín - allt sem tengist ástinni er rétt á þeim tíma ekki mistök. Nú er bara að finna eitthvað fallegt til að setja yfir þetta - því þannig er lífið og maður byggir ofan á það sem gert er. Kemur ekki vel út að fjarlægja. Elsti strákurinn minn er komin með nokkur tattú og þau eru öll tengd fjölskyldusögu hans, t.d. Kópavogskirkja inn í fallegri mynd af víkingi, einn af bátunum hans afa heitins sem hét Náttfari, uppáhaldsblómin mín ofl. Var skeptísk fyrst en nú tárast ég bara yfir því hvað hann hugsar þetta fallega. Þú finnur eitthvað sem tengist hjarta þínu og magnaðri sögu þinni,“ skrifar Katrín.
Enn aðrir koma með uppástungur um hvar Ellý getur látið fjarlægt húðflúrið eða breytt því í annað flúr. Þá eru nokkrir sem stinga upp á því að Ellý finni sér annan mann sem ber sama nafn.
