Það voru þær Ástrós Guðjónsdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir og Sylwia Olszewska sem báru sigur úr býtum í smákökukeppni Kornax í ár.
Ástrós nældi sér í fyrsta sætið með uppskrift að Piparsveinum, Valgerður vermdi annað sæti með Versala kökum og Sylwia bakaði sig í þriðja sætið með kökurnar Ljós.
Hér eru uppskriftirnar að þessum þremur sigursælu smákökusortum, sem ættu að gefa einhverjum innblástur í jólabakstrinum.

1 .sæti - Piparsveinar
Uppskrift:
Piparkúlukaramella
2 pokar piparkúlur frá Nóa Síríus
250 ml rjómi
Aðferð:
Setjið piparkúlurnar og rjómann í pott, bræðið saman á miðlungs hita og látið þykkna í pottinum. Það getur tekið nokkrar mínútu. Mjög mikilvægt er að hræra í pottinum allan tímann, annars er hætta á að karamellan brenni við. Kælið í ísskáp ca. 4-6 klukkustundir til þess að karamellan nái að þykkna, en ekki lengur svo að hún verði ekki of hörð.
Kókosbotn:
125 gr Kornax hveiti
125 gr sykur
125 gr kókosmjöl
125 gr smjör v/stofuhita
1 egg
Aðferð:
Öllu er blandað í skál og hrært saman. Gott er að byrja á því að hræra deigið saman í vél og þegar smjörið er byrjað að mýkjast þá er gott að taka deigið upp úr og hnoða það betur saman með höndunum. Gerið litlar kúlur úr deiginu og fletjið aðeins út , setjið á plötu og inn í ofn.
Kökurnar eru bakaðar við 180°C í 5-7 mínútur (fer eftir þykkt kökunnar). Þegar botnarnir og karamellan er tilbúin , þá smyrjum við karamellunni á botnana og hjúpum þá með suðusúkkulaði frá Nóa Síríus, einnig er fallegt að nota bráðið hvítt súkkulaði til skreytingar.

2. sæti - Versalakökur
Uppskrift:
2 egg
2 dl sykur
4 dl kókos
½ dl Kornax hveiti
1 dl möndlur saxaðar m/hýði
1 dl apríkósur saxaðar
Aðferð:
Hitið ofn í 180°C, þeytið egg og sykur þar til létt og ljóst. Blandið öllum hráefnum saman við með sleikju. Setjið deigið á plötu með 2 x skeiðum ca. 1 tsk hver kaka. Bakið í miðjum ofni í 10-12 mínútur.
Ofan á kökur:
150 gr Nóa Siríus hvítir súkkulaðidropar
Aðferð:
Bræðið í vatnsbaði og dreifið hvítu súkkulaði yfir kaldar kökurnar.

3. sæti - Ljós
Uppskrift:
113 gr ósaltað smjör v/stofuhita
2/3 bolli sykur
1 egg stórt – (aðskilið)
2 msk mjólk
1 tsk vanilludropar
¼ tsk lyftiduft
1 bolli Kornax hveiti
1/3 bolli Nói Síríus kakó
¼ tsk salt
1 bolli pekanhnetur
Aðferð kökur:
Hrærið smjör og sykur saman í stórri skál á miðlungshraða þar til það er vel blandað og mjúkt. Bætið eggjarauðu, mjólk og vanilludropum saman við. Setjið eggjahvítu í sér ílát inn í ísskáp. Í miðlungsskál hrærið saman hveiti, kakói og salti. Bætið hveitiblöndunni rólega út í smjörblönduna og hrærið vel. Breiðið yfir deigið og setjið í kæli í ca.1 klukkustund eða yfir nótt.
Hitið ofninn í 180° og setjið smjörpappír á ofnskúffu. Þeytið eggjahvítur. Mótið ca. 3 cm kúlur og dýfið hverri kúlu ofan í eggjahvítu, rúllið þeim svo yfir saxaðar pekanhnetur og setjið á ofnplötu. Þrýstið létt í miðju hverrar kúlu þannig að það myndast hola í kökurnar. Bakið í 12-13 mínútur. Takið úr ofni, þrýstið létt í miðju kökunnar þegar þær eru heitar, getið notað skaft á sleif. Leggið til hliðar, og þá skal gera karamelluna.
Karamella – uppskrift:
20-25 Nói Síríus töggur ljósar
3 msk þeyttur rjómi
Sjávarsalt (flögur) til að strá yfir.
Aðferð:
Setjið karamellur og rjóma í lítinn pott, bræðið yfir lágum hita. Hrærið í pottinum allan tímann svo karamellan brenni ekki. Þegar karamellan hefur þykknað og kólnað, setjið um ½ tsk af karamellu í holu á hverri köku. Stráið sjávarsalti yfir kökuna eftir smekk og látið karamelluna kólna.
Súkkulaðitoppur uppskrift:
100 gr Nói Síríus suðusúkkulaði
1 tsk kókosolía
Aðferð:
Hitið suðusúkkulaði og kókosolíu í lítilli skál í örbylgjuofni í ca. 1 mínútu. Takið út og hrærið, setjið aftur inn í örbylgjuofn ef þarf. Þegar súkkulaði er bráðið setjið það í lítinn plastpoka og klippið lítið gat í hornið á pokanum. Sprautið súkkulaði yfir kökurnar og látið kólna.
