Lífið

Árið 2017 gert upp: Skilnaðir skekja stjörnuheiminn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Myndir: Getty Images
Nú nálgast lok ársins 2017 óðfluga, en árið hefur ekki verið sérlega gott ef litið er til ástarmála fræga fólksins. 

Mörg pör sem voru búin að vera saman í fjöldamörg ár ákváðu að binda enda á ástarsamband sitt á árinu sem er að líða, og hér eru nokkrir skilnaðir sem komu svo sannarlega á óvart.

Úti er ævintýri.Vísir / Getty Images
Ben Stiller og Christine Taylor

17 ára hjónaband



Það var áfall fyrir marga þegar kvikmyndastjörnurnar Ben Stiller og Christine Taylor tilkynntu í apríl að þau væru að skilja eftir sautján ára hjónaband. Þau eiga tvö börn saman, Ella og Quinlin, og sögðu í fréttatilkynningu vera enn mjög hlýtt til hvors annars.

„Með geysimikilli ást og virðingu fyrir hvort öðru, og þeim átján árum sem við höfum eytt saman sem par, höfum við ákveðið að skilja.“

Ben og Christine hafa leikið í nokkrum myndum saman, þar á meðal Zoolander 1 og 2, Tropic Thunder og Dodgeball.

Au revoir mon amour!Vísir / Getty Images
Romain Dauriac and Scarlett Johansson

2 ára hjónaband



Leikkonan Scarlett Johansson og franski blaðamaðurinn Romain Dauriac skildu í janúar eftir tveggja ára hjónaband. Scarlett og Romain byrjuðu að deita í nóvember árið 2012 og eignuðust dótturina Rose árið 2014. Í október það ár gengu þau í það heilaga. Í fréttatilkynningu um skilnaðinn sagðist Scarlett aldrei ætla að tjá sig um skilnaðinn við Romain

„Sem ástrík móðir og manneskja sem metur einkalíf sitt, er ég að fullu meðvituð um að dóttir mín verður einn daginn nógu gömul til að lesa fréttir um sig sjálfa. Því vil ég segja að ég mun aldrei tjá mig um upplausn hjónabands míns.“

Búið spil.Vísir / Getty Images
Chris Pratt og Anna Faris

8 ára hjónaband



Leikaraparið Chris Pratt og Anna Faris tilkynntu um skilnað sinn í ágúst, en þau voru gift í átta ár. 

„Við erum mjög leið yfir því að tilkynna að við erum að skilja,“ skrifaði parið í sameiginlegri yfirlýsingu á samfélagsmiðlum.

„Við reyndum í langan tíma og við erum mjög vonsvikin. Sonur okkar á tvo foreldra sem elska hann mjög mikið og fyrir hans sakir viljum við halda þessum aðstæðum eins mikið fyrir okkur og við getum. Við elskum enn þá hvort annað og metum tímann sem við áttum saman.“

Chris og Anna eignuðust soninn Jack í ágúst 2012.

Where is the love?Vísir / Getty Images
Fergie og Josh Duhamel

8 ára hjónaband



Söngkonan Fergie og leikarinn Josh Duhamel byrjuðu saman árið 2004 og giftu sig í janúar árið 2009. Í september tilkynntu þau um skilnað sinn, en saman eiga þau soninn Axl sem er fjögurra ára.

„Við munum alltaf styðja hvort annað og fjölskyldu okkar,“ skrifuðu þessi fyrrverandi hjón í fréttatilkynningu um leið og þau báðu fjölmiðla að virða einkalíf sitt.

Hætt saman eftir 10 ár.Vísir / Getty Images
Hayden Christensen og Rachel Bilson

10 ár saman



Leikararnir Hayden Christensen og Rachel Bilson fóru hvort í sína áttina í ár eftir næstum því tíu ár saman. Þau kynntust fyrst á setti myndarinnar Jumper árið 2008 og eiga saman dótturina Briar Rose, sem kom í heiminn í október árið 2014.

Ástarsaga með óvæntum endi.Vísir / Getty Images
Gina Torres and Laurence Fishburne

14 ára hjónaband



Suits-leikkonan Gina Torres og Black-ish-stjarnan Laurence Fishburne skildu eftir 14 ára hjónaband, en þau eiga dótturina Delilah, 10 ára.

„Það er enginn vondi karl hér. Bara ástarsaga sem endaði öðruvísi en við áttum von á,“ sagði Gina í fréttatilkynningu um skilnaðinn.

Forræðisdeila í uppsiglingu?Vísir / Getty Images
Jennifer Hudson og David Otunga

10 ár saman



Og nú síðast í gær fengum við þær fregnir að söngkonan Jennifer Hudson og glímukappinn David Otunga væru búin að gefa ástina uppá bátinn eftir 10 ára samband.

Jennifer og David trúlofuðu sig árið 2008 og árið síðar buðu þau soninn David Jr. velkominn í heiminn. Fregnir herma að forræðisdeila taki við þar sem David ku vilja fullt forræði yfir snáðanum.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.