Tíska og hönnun

Forsetinn með fiskabindi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Guðni skoðar hér skipslíkan í bás Måløy Maritime Group frá Noregi á IceFish.
Guðni skoðar hér skipslíkan í bás Måløy Maritime Group frá Noregi á IceFish. mynd/Bragi Þór Jósefsson
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, heimsótti Íslensku sjávarútvegssýninguna, IceFish 2017, í Smáranum fyrr í dag. Guðni ræddi við skipuleggjendur sýningarinnar undir forystu Mari­anne Rasmus­sen-Coull­ing, fram­kvæmda­stjóra sýningarinnar og Andrew Webster, framkvæmdastjóra Mercator Media sem hefur haft umsjón með sýningunni síðan 2008, en heimsótti síðan nokkra af helstu sýnendum.

Guðni lýsti yfir ánægju sinni með sýninguna og hvernig að henni var staðið, sérstaklega hversu vel hún endurspeglaði þrótt og nýsköpun íslenskra fyrirtækja í sjávarútvegi og þeirra sem þjónusta þau með tækjum og búnaði.

Forsetinn þáði m.a. boð Marels um að reyna ný sýndarveruleikagleraugu sem senda notandann á ferðalag um hátæknilega fiskvinnslu. Guðni sló á létta strengi þegar gleraugun voru komin á hann og uppskar hlátur viðstaddra þegar hann spurði hvort að hann ætti núna að skjóta á geimverur?

Bindið sem forsetinn bar vakti líka athygli gesta, en það skartaði litríkum fiskum. Guðni sagðist hafa fengið bindið þegar hann var að vinna að doktorsritgerð sinni í Bretlandi, en hún fjallaði um útvíkkun landhelgi Íslands og þorskastríðin við Breta 1948-1964.

Þá þurfti hann að leita til nefndar ytra um styrk til frekari ritsmíða og þáverandi unnusta hans og núverandi eiginkona, Eliza Reid, gaf honum bindið af því tilefni. Hann fór síðan á fund nefndarinnar og fékk styrkinn.

„Þeir sögðu við mig eftir á að maður sem sýndi svo mikla ástríðu fyrir efninu að hann bæri meira að segja hálsbindi skreytt fiskum yrði óhjákvæmilega að fá styrk,“ sagði Guðni við góðar viðtökur viðstaddra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.