Fótbolti

Lagerbäck: Aldrei tapað svo stórt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Norðmenn voru niðurlægðir í Stuttgart í gær er þeir töpuðu 6-0 fyrir heimsmeisturum Þýskalands.

Norðmenn eru í sárum eftir að hafa tapað fyrir Þýskalandi í undankeppni HM 2018 í gær, 6-0. Það er því útlit fyrir að landslðisþjálfarinn Lars Lagerbäck eigi enn mikið verk fyrir höndum að koma norska liðinu aftur upp í fyrri hæðir.

„Ég hef aldrei fyrr tapað með svo miklum mun á mínum landsliðsþjálfaraferli,“ sagði hann við norska fjölmiðla eftir leikinn í gær. „Ég held að stærsta tapið hafi áður verið 3-0 tap gegn Þýskalandi sem þjálfari sænska liðsins.“

Lars Lagerbäck tók við þjálfun íslenska landsliðsins í lok árs 2011 og stýrði því fram yfir EM 2016, síðustu tvö árin með Heimi Hallgrímsson sem meðþjálfara. Á þeim tíma tapaði Ísland aldrei með meira en tveggja marka mun nema í lokaleik Lagerbäck, í 5-2 tapi gegn Frökkum í 8-liða úrslitum EM.

Hann hefur nú stýrt norska liðinu í fimm leikjum en unnið aðeins einn, það var gegn Aserum á föstudagskvöldið.

Noregur er sem stendur í 85. sæti styrkleikalista Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, en til samanburðar má nefna að Ísland er í 20. sæti.

En þrátt fyrir tapið slæma í gær hélt Lagerbäck ró sinni eftir leikinn. „Við hreyfðum okkur ekki nógu vel þegar Þýskaland sótti. Þjóðverjar eru með eitt besta sóknarlið heims og gerðu þetta mjög erfitt fyrir okkur,“ sagði hann.

„Við munu greina leikinn og læra af honum,“ bætti Svíinn við.

Norðmenn eru í næstneðsta sæti í C-riðli og höfðu fyrir sigurinn á Aserum á föstudag aðeins náð að leggja San Marínó að velli í undankeppninni. Noregur er með sjö stig en Þýskaland er efst í riðlinum með fullt hús stiga að loknum átta leikjum. Norður-Írland er í öðru sæti með nítján stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×