Fótbolti

Miðasala á Ísland - Kósóvó hefst á þriðjudaginn

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Íslenskir áhorfendur á leiknum gegn Úkraínu.
Íslenskir áhorfendur á leiknum gegn Úkraínu.
Miðasala á lokaleik Íslands í undankeppni HM, gegn Kósóvó á Laugardalsvelli þann 9. október, hefst þriðjudaginn 12. september klukkan 12:00.

Eins og áður mun miðasalan fara fram í gegnum miðasölukerfi midi.is. Mikilvægt er að notast við vafra sem styður flash, t.d. Google Chrome.

Ekki er heimilt að kaupa fleiri en 4 miða á hverja kennitölu og samkvæmt miðaskilmálum KSÍ og Miða.is er óheimilt að nota aðgöngumiða frá KSí í markaðslegum tilgangi, eins og t.d. í gjafaleikjum á samfélagsmiðlum.

Verð í rautt svæði er 7000kr, blátt svæði 5000 og grænt svæði 3000kr. Barnaverð er 50% af fullu verði og fæst fyrir 16 ára og yngri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×