Er þetta nýi BMW X7 jeppinn? Finnur Thorlacius skrifar 7. september 2017 15:25
BMW mun sýna stærri jeppa en fyrirtækið hefur áður smíðað á bílasýningunni í Frankfurt, sem hefst í næstu viku. Eðlilega ber hann stafina X7 og fylgir í kjölfar X5, X3 og X1. Þetta er 7 sæta jeppi af stærri gerðinni og líklega ætlaður helst til góðrar sölu í Bandaríkjunum þar sem mikil eftirspurn er eftir svo stórum bílum. Svo virðist sem BMW hafi átt í nokkrum vandræðum með að hanna laglegt nýrnalaga grillið á svo stóran bíl og lítur það vægast sagt einkennilega út á svo stórum framenda. Ef marka má þessar myndir sem sagt er að hafi lekið út af nýja bílnum er að auki eins og búið sé að setja teikningu af öðrum BMW bíl í ljósritunarvél og stækka hann um svona 30%. Því má helst vona að þessar myndir séu ekki hinar réttu af þessum nýja stóra jeppa. Lengi hefur verið beðið eftir stórum jeppa frá BMW og víða hefur BMW X5 jeppinn talist full smár. BMW hefur enda margsinnis úttalað sig um framleiðslu slíks jeppa og nú er semsagt komið að því að kynna hann í Frankfurt. Á myndunum af bílnum má einnig sjá að gert er ráð fyrir hleðsluinnstungu svo búast má við því að hann verði í boði sem tengiltvinnbíll og kemur það fæstum á óvart.Stór og stæðilegur en einkennilegur 90 gráðu hliðarlisti.Einnig 90 gráðu listar að aftan.Hinn smekklegasti að innan.
Mest lesið Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Erlent Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Erlent Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Innlent Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Innlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Innlent Landlæknir hlynnt því að banna ljósabekki Innlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Tugir látnir eftir eldsvoða í verslunarmiðstöð Erlent