Veiði

Það sem er líklegt til árangurs í litlu vatni

Karl Lúðvíksson skrifar
Laxinn leggst niður í djúpa hylji þegar árnar verða vatnslitlar.
Laxinn leggst niður í djúpa hylji þegar árnar verða vatnslitlar.
Vatnsleysi herjar nú á laxveiðiárnar á vestur og norðvesturlandi með tökuleysi og áskorunum í að fá laxinn til að taka.

Það er þó hægt að beita nokkrum ráðum til að gera sem best úr þessum aðstæðum og auka líkurnar á að setja í lax.  Þegar sólin skín bjart yfir daginn verður laxinn mjög styggur og leggst gjarnan í djúpa hylji, indur skuggann við steina og eins leitar hann oftar en ekki í hraðara vatn þegar árnar verða vatnslitlar.  Það skiptir því sköpum að lesa vatnið og veiða veiðistaðina oft ofar en vani er þar sem rennsli er meira en á hefðbundnum tökustað en þetta er auðvitað mismunandi eftir veiðistöðum.  Við viljum gefa ykkur þrjú góð ráð til að auka líkurnar á að setja í lax í næstu veiðiferð.

1. Lengdu tauminn.  Notaðu granna tauma, 10-12 punda er alveg feykinóg í flestum ám og lengdu tauminn. Það hefur verið þumalputtaregla að hafa tauminn um stangarlengd en í litlu vatni á björtum degi er oft gott að lengja hann um hálfa stangarlengd til viðbótar.

2. Um fluguval er það helst að nota annað hvort litlar flugur eða litlar túpur t.d. 1/4" kóna á löngum taum til að koma flugunni aðeins niður í vatnið.  Ekki hefur það reynst gjöfult að "hitcha" en stutt hratt stripp virkar oft vel.  

3. Veiddu andstreymis.  Já þetta nefnilega virkar í laxi.  Þeir sem eru vanir að veiða silung eiga að skipta um gír og nota silungaflugur, helst þyngdar og veiða eins og þegar kastað er andstreymis fyrir silung í straumvatni.  Lengd taumsins ræðst af dýpt veiðistaðir.  Djúpur staður = langur taumur.






×