Spá ESPN fyrir tímabilið í NBA: Golden State vinnur flesta leiki og Lakers missir af úrslitakeppninni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. ágúst 2017 23:30 Ef spá ESPN gengur eftir verður Golden State með flesta sigurleiki í NBA-deildinni fjórða tímabilið í röð. vísir/getty
Samkvæmt spá sem birtist á vef ESPN munu meistarar Golden State Warriors vinna flesta leiki í NBA-deildinni á næsta tímabili. Eins og undanfarin ár hefur ESPN sett saman spá um gengi liðanna í NBA byggða á RPM (real plus-minus) reikniformúlunni. ESPN spáir því að Golden State muni vinna 62,1 leik á næsta tímabili. Ef spáin gengur eftir verður Golden State með flesta sigurleiki í NBA fjórða tímabilið í röð. Golden State vann 67 leiki tímabilin 2014-15 og 2016-17 en tímabilið 2015-16 setti liðið met með því að vinna 73 leiki. Houston Rockets nældi í leikstjórnandann Chris Paul í sumar og samkvæmt spá ESPN mun liðið vinna næstflesta leiki í vetur, eða 55. San Antonio Spurs kemur þar á eftir með 52,6 sigra og svo Minnesota Timberwolves með 50,1 sigur. Það yrði umtalsverð bæting frá síðasta tímabili þegar Minnesota vann aðeins 31 leik. Samkvæmt spá ESPN leika fimm bestu lið NBA í Vesturdeildinni. Því er spáð að efsta liðið í Austurdeildinni, Boston Celtics, vinni 49,4 leiki. Cleveland Cavaliers kemur þar á eftir með 49,2 sigra. Los Angeles Lakers missir af úrslitakeppninni fimmta árið í röð ef spáin gengur eftir. Þrátt fyrir það spáir ESPN að Lakers muni vinna 33 leiki, sjö leikjum meira en á síðasta tímabili. Samkvæmt spánni mun Atlanta Hawks vinna fæsta leiki allra liða í vetur, eða aðeins 27.Spá ESPN í heild sinni má lesa með því að smella hér.
NBA Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Körfubolti Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Fótbolti Fleiri fréttir Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk Sjá meira