Lífið

Myndir frá Druslugöngunni

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá göngunni í dag.
Frá göngunni í dag. Vísir/Laufey Elíasdóttir
Fjölmargir gengu um miðbæinn í dag til þess að færa ábyrgð kynferðisglæpa frá þolendum yfir á gerendur. Gengið var frá Hallgrímskirkju og niður á Austurvöll þar sem haldnar voru ræður. Þetta var í sjöunda sinn sem Druslugangan er haldin og að þessu sinni var stafrænt kynferðisofbeldi í forgrunni.

Hér fyrir neðan má sjá myndir sem ljósmyndarinn Laufey Elíasdóttir tók í dag.

Vísir/Laufey Elíasdóttir

Tengdar fréttir

„Hvorki þú, lögfræðingur þinn, né vanhugsuð lög geta þaggað niður í okkur“

"Þú rændir okkur æskunni, þú rændir okkur frelsinu. Þetta eru okkar líf og okkar saga. Hvorki þú, lögfræðingur þinn, né vanhugsuð lög geta þaggað niður í okkur. Við eigum þessa sögu. Við eigum okkur sjálfar. Við erum frjálsar.“ Svona hljóma upphafsorðin í ræðu þeirra Önnu Katrínu Snorradóttur, Höllu Ólöfu Jónsdóttur, Glódísar Töru og Nínu Rúnar Bergsdóttur sem flutt var við mikið lófaklapp að aflokinni Druslugöngu.

„Hættum að klikka, hættum að deila og hættum að beita ofbeldi“

Helga Lind Mar á sér þá ósk að eftir nokkur ár verði viðhorfið í samfélaginu þannig að það þyki jafn undarlegt að kenna þolendum stafræns kynferðisofbeldis um ofbeldið sem það varð fyrir og okkur þykja ummæli lögregluþjónsins frá Toronto sem viðhafði þolendaskömmun. Ummæli lögregluþjónsins voru á þann veg að konur skyldu forðast að klæða sig eins og druslur í þeim tilgangi að koma í veg fyrir kynferðisofbeldi. Ummælin umdeildu urðu einmitt til þess að Duslugangan hóf göngu sína í apríl 2011.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.