Tíska og hönnun

Notaði ekki helminginn af fötunum og dró því úr innkaupum

Sólveig Gísladóttir skrifar
Sylvía Briem Friðjónsdóttir.
Sylvía Briem Friðjónsdóttir. Vísir/Eyþór
Sylvía Briem Friðjónsdóttir ákvað að draga úr magninnkaupum á fötum og kaupir nú færri flíkur en veglegri.

Þrjú af uppáhaldsúrum Sylvíu.Vísir/Eyþór
„Ég spáði meira í tísku hér áður fyrr en er farin að gera það minna núna.

Ég vil venja mig af því að fylgjast of vel með og skapa mig svolítið sjálf,“ segir Sylvía sem er Dale Carnegie- og heilsumarkþjálfi og starfar auk þess í Ölgerðinni.

Hún segir stíl sinn eiga til að breytast dag frá degi, oft út frá skapi.

„Ég er samt farin að finna mér flíkur sem eru þægilegar, fjölnota og veglegar.

Ég var áður þessi „bulk“ neytandi. Gat keypt endalaust en notaði ekki helminginn. Ég er að reyna að draga úr því.“



Sylvía segist vera veskjasjúk enda á hún ófá slík.Vísir/Eyþór
Sylvía segist helst kaupa föt erlendis en eftirlætisbúðin hennar hér heima er Zara. 

„Finnst alltaf til mjög fallegar vörur þar.“

En á hún einhverja uppáhaldsflík?


„Ég á það til að fá mjög leið á hlutum en sú flík sem ég fæ ekki leið á er svarti leðurjakkinn minn. Hann passar einhvern veginn alltaf.“

Hvað með fylgihluti?

„Ég er algerlega veskja-, hatta- og úrasjúk en er lítið með skart. Reyndar nánast aldrei.“

Sylvía segist sækja innblástur úr nærumhverfinu. 

„Mér finnst íslenskar konur almennt mjög fallega klæddar. Mér finnst eiginlega skemmtilegast að horfa í kringum mig hér heima og sækja mér innblástur þar.“

Sylvía heldur mikið upp á hatta og hér má sjá smá brot úr safninu.Vísir/Eyþór
Sylvía segir íslenskar konur fjölbreyttar í klæðavali.

„Maður sér svo margar týpur sem mér þykir mjög áhugavert!“

Sylvía í jakka frá Selected og skyrtu úr Urban Outfitters en buxurnar eru Oroblu gallaleggings.Vísir/Eyþór





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.