Matthías skaut Rosenborg áfram í Meistaradeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. júlí 2017 19:50 Matthías Vilhjálmsson hefur raðað inn mörkum á leiktíðinni en fá hafa verið mikilvægari en markið hans í kvöld. Vísir/Getty
Norsku meistararnir í Rosenborg eru komnir áfram í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu eins og Íslandsmeistarar FH. Norðmennirnir geta þakkað íslenskum framherja liðsins að félagið komst áfram í kvöld. Rosenborg vann þá 2-1 sigur á írska félaginu Dundalk eftir framlengdan leik og þar með 3-2 samanlagt. Þessi leikur fór fram á heimavelli Rosenborg en liðin gerðu 1-1 jafntefli út í Írlandi. Matthías Vilhjálmsson kom inná sem varamaður og skoraði sigurmark Rosenborg eftir átta mínútna leik í framlengingunni. Matthías skoraði markið með skalla af stuttu færi eftir fyrirgjöf. Brian Gartland kom Dundalk í 1-0 strax á 12. mínútu en Yann-Erik de Lanlay jafnaði fyrir Rosenborg rétt fyrir hálfleik. Matthías kom sem síðan inn á völlinn á 72. mínútu þegar staðan var ennþá 1-1. Ekkert var skorað það sem eftir lifði venjulegs leiktíma en úrslitin réðustu svo í fyrri hluta framlengingarinnar þar sem íslenski framherjinn var réttur maður á réttum stað eins og svo oft í sumar. Matthías hefur skorað 15 mörk fyrir Rosenborg í öllum keppnum á leiktíðinni þrátt fyrir að hafa aðeins byrjað inná í 10 leikjum liðsins. Rosenborg mætir vað öllum líkindum Celtic frá Skotlandi í næstu umferð Meistaradeildarinnar. Celtic vann fyrri leikinn 2-0 á móti Linfield og er 1-0 yfir í hálfleik í seinni leiknum.
Meistaradeild Evrópu Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Sjá meira