Svæðið sem er kennt við Nes í Laxá er líklega eitt best þekkta stórlaxasvæði landsins og á hverju sumri koma á land laxar sem eru um og yfir 100 sm.
Það er líka eitt sem einkennir veiðina á þessu svæði en það er sú staðreynd að sömu veiðimennirnir virðast vera afar lunknir við að setja í stórlaxana sem þarna liggja. Í gær kom einn slíkur á land og samkvæmt okkar upplýsingum er þetta stærsti laxinn í sumar en hann var mældur 105 sm og 13.5 kg eða 30 ensk pund. Þessi magnaði lax tók í veiðistaðnum Hornflúð og sá sem setti í hann og landaði er Hilmar Hansson en hann þekkir þetta svæði vel og Veiðivísir hefur áður birt myndir af stólröxum sem hann hefur tekið á þessu svæði en þetta er sé stærsti hingað til hjá Hilmari af Nesi.
Það er nokkuð af laxi í Laxá en veiðin stendur núna í 100 löxum frá miðvikudeginum en á sama tíma í fyrra voru komnir 266 laxar á land. Það virðist vera aðeins minna af tveggja ára laxi en 2016 en það sem helst virðist þó halda aftur af veiðitölum þessa dagana er kalt vatn í ánum og kaldur lofthiti.
Það er kalt á norðurlandi og takan í Laxá sem og öðrum ám datt niður í gær og eftir þeim fréttum sem við höfum hefur hún verið róleg í morgun enda árnar kaldar. Snjóföl sást í fjöllum og heilt yfir er ekki margt sem minnir á sumar enn sem komið er í þessum landshluta.
30 punda lax á land í Laxá
