Sjáðu myndirnar úr íshellateitinu inni í Langjökli Stefán Árni Pálsson skrifar 21. júní 2017 16:15 Mikil stemning inni í Langjökli. Myndir/ásgeir helgi og Juliette Rowland
Föstudaginn síðastliðinn kom norski tónlistarmaðurinn BAYA til landsins til að spila á einu mest framandi sviði heims, inni í íshelli Langjökuls. Tónleikarnir sem voru í boði Red Bull voru liður í hliðardagskrá Secret Solstice tónlistarhátíðarinnar. Gestir fóru um borð í rútu á föstudagsmorgni og þurftu ferðalangarnir að setja á sig mannbrodda þegar ævintýrið inn í mannvirkið hófst. Allir fengu leiðsögn um íshellinn og fengu frásögn um það hvernig hellirinn var mótaður með mannafli og hvernig hægt er að sjá aldur íssins af rákunum í veggjunum. Þegar búið var að skoða sig um var fólki boðið upp á veitingar og tónleikar hófust.Hellirinn bráðnaði Það var hin íslenska rafhljómsveit aYia sem steig fyrst á svið en hún er ein nýjasta og heitasta hljómsveit íslensku raftónlistarsenunnar. Næstur á svið var hinn norski BAYA (Andrew Murray Baardsen) sem hefur á örfáum mánuðum orðið einn áhrifamesti nýliði norsku raftónlistarsenunar. Fyrsta platan hans kom út í febrúar og ber hún nafnið Oslo-Harlem og er innblásin af fyrstu kynnum Andrews við pabba sinn, Bruno Baya Sompohi, fyrir nokkrum árum. BAYA tókst vel að fá gesti til að dansa sem varð til þess að hellirinn byrjaði bókstaflega að bráðna undan hita fólksins. Hér að neðan má sjá skemmtilegar myndir úr teitinu.
Tengdar fréttir Ísgöngin í Langjökli metin á milljarð króna Félagið sem býður upp á ferðir í ísgöngin í Langjökli er metið á rúman milljarð króna í bókum framtakssjóðsins ITF. Virði félagsins var fært upp um 150 prósent í fyrra. 21. júní 2017 08:00 Mest lesið Frægustu mágar landsins Lífið Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð Lífið Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Lífið Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Lífið Ocasio-Cortez á lausu Lífið OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Lífið Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Lífið Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Sjá meira
Ísgöngin í Langjökli metin á milljarð króna Félagið sem býður upp á ferðir í ísgöngin í Langjökli er metið á rúman milljarð króna í bókum framtakssjóðsins ITF. Virði félagsins var fært upp um 150 prósent í fyrra. 21. júní 2017 08:00