Jimmy Butler spangólar nú sem Úlfur 23. júní 2017 09:00 Jimmy Butler er farinn til Minnesota. vísir/getty
Liðin í NBA-deildinni hristu sum hver hressilega upp í leikmannamálum sínum í gærkvöldi þegar nýliðavalið fór fram en engin leikmannaskipti komu meira á óvart en það sem gerðist hjá Chicago Bulls. Chicago nefnilega sendi frá sér besta leikmann liðsins, Jimmy Butler, þrefaldan stjörnuleikmann og landsliðsmann Bandaríkjanna, en hann fór til Minnesota Timberwolves og endurnýjar þar kynnin við sinn gamla þjálfara Tom Thibodeau. Fyrir Butler fékk Chicago Bulls leikmennina Kris Dunn og Zach LaVine frá Minnesota auk sjöunda valréttar í nýliðavalinu sem Bulls nýtti til að landa Finnanum Lauri Markkanen. Markkanen er risi sem getur neglt niður þristum eins og enginn sé morgundagurinn. „Það sem við gerðum í kvöld var að marka nýja stefnu. Við ætlum núna að spila á ungum leikmönnum. Við ætlum að vera agaðir og þolinmóðir,“ sagði John Paxon, varaforseti Bulls, eftir atburði gærkvöldsins svona rétt til að róa stuðningsmennina niður. „Það er erfitt að taka svona ákvarðanir. Við sendum frá okkur strák sem okkur líkar mjög vel við. Í kvöld tókum við ákvörðun um að breyta um stefnu,“ sagði John Paxon. Hér að neðan má sjá brot af því besta með Lauri Markkanen.
NBA Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Handbolti Fleiri fréttir Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Sjá meira