Fótbolti

Rúrik: Ekki tilbúinn að gefast upp

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rúrik Gíslason, landsliðsmaður í fótbolta, er tilbúinn að berjast fyrir sæti sínu í byrjunarliði Nürnberg á næsta tímabili.

Rúrik kom við sögu í 15 leikjum í þýsku B-deildinni í vetur en var aðeins þrisvar sinnum í byrjunarliðinu. Þrátt fyrir það hefur hann ekki lagt árar í bát.

„Ég er alveg tilbúinn að taka slaginn og sýna hvað í mér býr. Ég tel að ég eigi að spila meira og það er ástæðan fyrir því að ég er enn að berjast í þessu. Ég er ekki alveg tilbúinn að gefast upp strax,“ sagði Rúrik í samtali við Vísi fyrir æfingu íslenska landsliðsins á Laugardalsvelli í dag.

Framundan er leikur gegn Króötum sem hafa reynst Íslendingum erfiðir í gegnum tíðina. Rúrik er fullur tilhlökkunar fyrir leiknum.

„Mér finnst það spennandi. Það er dálítill hefndarhugur í okkur. Ég held að það sé loksins komið að okkur að vinna,“ sagði Rúrik.

Króatar áttu þrjá fulltrúa í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á laugardaginn var. Mario Mandzukic skoraði mark Juventus, Luka Modric var einn besti maður vallarins og Mateo Kovacic sat allan tímann á bekknum hjá Real Madrid.

„Það er hvatning að spila á móti svona stórum leikmönnum og góðu liði. Mér finnst oft hafa vantað tempó og stemmningu í þessa sumarleiki á Íslandi en ég get lofað því að þetta verður hörkuleikur,“ sagði Rúrik.

Hann segist vera klár í bátana þrátt fyrir lítinn spiltíma í vetur.

„Ég myndi segja að ég væri í toppstandi. Ég hef æft mjög vel síðan ég kom heim og æfði vel í vetur. Ég er klár í þetta,“ sagði Rúrik að lokum.


Tengdar fréttir

Enginn Rakitic gegn Íslandi

Strákarnir á miðjunni í íslenska landsliðinu munu sleppa við glímu gegn Ivan Rakitic, miðjumanni Barcelona, á Laugardalsvellinum um helgina.

Heimir sendi knattspyrnustjórum strákanna tóninn

Heimir Hallgrímsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, ætlar ekki að gefa neitt eftir í viðskiptum sínum við knattspyrnustjórna félaganna sem íslensku landsliðsmennirnir spila með.

Alfreð veikur og gat ekki æft

Alfreð Finnbogason missti af æfingu landsliðsins nú fyrir hádegi þar sem hann er orðinn veikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×