Durant fær mikið lof: Hann er besti leikmaður NBA-deildarinnar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. júní 2017 21:45 Kevin Durant fagnar með Zaza Pachulia og Stephen Curry. Vísir/Getty
Kevin Durant fékk mikið lof fyrir frammistöðu sína eftir sigur Golden State Warriors á Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni í nótt. Með sigrinum komst Golden State í 3-0 forystu gegn Cleveland en Durant var sérstaklega öflugur í fjórða leikhluta, þegar Golden State náði að síga fram úr á lokamínútum leiksins. Paul Pierce, fyrrum framherji Boston Celtics, var ekki í vafa um að Durant hefði með frammistöðu sinni tekið fram úr öllum öðrum leikmönnum NBA-deildarinnar. „Við erum að verða vitni að valdaskiptum. Durant skoraði fjórtán stig í fjórða leikhluta þegar það var mest undir í leiknum og á stærsta sviði körfuboltans,“ sagði Pierce sem var sérfræðingur í útsendingu ESPN-sjónvarpsstöðvarinnar frá leiknum. „Hann var að spila á útivelli gegn LeBron James. Hvað er hægt að fara fram á mikið meira? Í mínum huga er hann nýi besti leikmaðurinn í NBA-deildinni.“ Durant setti niður þriggja stiga körfu þegar 45 sekúndur voru eftir af leiknum sem kom Golden State yfir og virtist veita Cleveland rothögg. Durant tók þá niður varnarfrákast, skokkaði yfir völlinn og setti niður þriggja stiga skot - yfir LeBron James. Sagði hann eftir leik að hann hafi séð James á hælunum og að hann hefði æft þetta skot alla sína æfi. Þriggja stiga skotið magnaða má sjá í myndbandinu hér fyrir neðan.
NBA Tengdar fréttir Golden State Warriors tapar miklum peningum á því að sópa út Cleveland Golden State Warriors er aðeins einum sigurleik frá því að vinna NBA-titilinn eftir fimm stiga sigur á Cleveland Cavaliers í úrslitaeinvígi NBA í nótt. 8. júní 2017 10:15 Golden State Warriors 3-0 yfir og bara einum sigri frá fullkomnun | Myndbönd Golden State Warriors er komið í 3-0 í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar í körfubolta eftir 118-113 sigur á Cleveland Cavaliers í nótt og getur því tryggt sér NBA-titilinn með sigri í næsta leik liðanna á föstudaginn. 8. júní 2017 07:15 Mest lesið Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Mun Guðmundur reisa Holland við? Handbolti Einar mölbraut hendurnar á hlaupahjóli en átti magnað EM Sport Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Fótbolti Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Fótbolti Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Fótbolti Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Handbolti Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði“ Sport Myndi taka kúlu fyrir Infantino Fótbolti Fleiri fréttir Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjá meira
Golden State Warriors tapar miklum peningum á því að sópa út Cleveland Golden State Warriors er aðeins einum sigurleik frá því að vinna NBA-titilinn eftir fimm stiga sigur á Cleveland Cavaliers í úrslitaeinvígi NBA í nótt. 8. júní 2017 10:15
Golden State Warriors 3-0 yfir og bara einum sigri frá fullkomnun | Myndbönd Golden State Warriors er komið í 3-0 í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar í körfubolta eftir 118-113 sigur á Cleveland Cavaliers í nótt og getur því tryggt sér NBA-titilinn með sigri í næsta leik liðanna á föstudaginn. 8. júní 2017 07:15