„Þar unnum við með lítið magn af ákveðnum týpum, eða hettupeysur og stuttermabolir. Við vorum með sex týpur af peysum og tvær af stuttermabolum,“ segir Arnar Leó Ágústsson.
Reykjavík Roses var stofnað árið 2014 af Arnari Leó og Sturla Sær Fjeldsted, sem verkefni í Menntaskólanum við Sund sem snérist um að stofna sitt eigið fyrirtæki. Seinna komu til liðs við þá Konráð Logi og svo Hlynur James.
„Um jólin 2016 hönnuðum við og gáfum út okkar fyrsta Collection sem að seldist upp á mettíma.“
Arnar segir að þegar þeir félagar hafi mætt í vinnuna á mánudagsmorgun hafi verið röð fyrir utan verslunina.
Hér að neðan má sjá nýju fatalínu Reykjavík Roses.



