Stjórnvöld í Tyrklandi létu hirða vegabréfið af NBA-stjörnu Kristinn Páll Teitsson skrifar 21. maí 2017 23:15 Kanter ásamt Russel Westbrook í leik í vetur. Vísir/Getty
Enes Kanter, miðherji Oklahoma City Thunder, lenti í heldur óskemmtilegu atviki á ferðalagi sínu um Evrópu á dögunum er rúmnesk yfirvöld tóku af honum vegabréfið og kröfðust þess að honum yrði haldið á flugvelli í Búkarest. Kanter er á ferðalagi um heiminn til að kynna stofnun sína, Light Foundation en hefur tekið þátt í ýmsum viðburðum á vegum stofnunarinnar á ferðalagi sínu um heiminn til þess að hjálpa við að fæða og klæða þá sem ekki hafa efni á því. Er hann kom til Búkarest frá Filippseyjum var hann stöðvaður af yfirvöldum og sagt að taka ætti af honum vegabréfið en hann þurfti þess vegna að stöðva ferðalag sitt um heiminn. Þar sem Kanter er með græna kortið (e. green card) þá tókst NBA-deildinni að koma honum aftur til Bandaríkjanna í gegnum London en hann ræddi þetta við fjölmiðlamenn við komuna. Kanter hefur ekki farið í felur með skoðanir sínar á forseta Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan en hann hefur líkt honum við verstu einræðisherra mannkynssögunar. Hefur hann fyrir vikið ekki leikið fyrir tyrkneska landsliðið en fjölskylda hans hefur hafnað honum og hefur hann fengið líflátshótanir fyrir skoðanir sínar. „Okkur var haldið þarna í nokkra klukkutíma af lögregluþjónum. Eina ástæðan fyrir þessu eru pólitískar skoðanir mínar og sá sem stendur á bak við þetta er Erdogan, forseti Tyrklands.“
NBA Mest lesið Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Mun Guðmundur reisa Holland við? Handbolti Einar mölbraut hendurnar á hlaupahjóli en átti magnað EM Sport Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Fótbolti Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Fótbolti Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Fótbolti Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Handbolti Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði“ Sport Myndi taka kúlu fyrir Infantino Fótbolti Fleiri fréttir Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjá meira