Heimilislaus maður aðstoðaði börn sem lentu í sprengjuárásinni í Manchester Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. maí 2017 17:47 Fórnarlamba árásarinnar var minnst víða í Manchester í dag. Vísir/Getty
Heimilislaus maður í Manchester lýsir því hvernig hann hjálpaði börnum sem lentu í sprengjuárásinni í Manchester Arena tónlistarhöllinni í gær með því að draga nagla úr handleggjum og andlitum þeirra. Maðurinn heitir Stephen Jones og var sofandi nálægt tónleikahöllinni við nærliggjandi götu þegar hann heyrði sprengjuna springa. Eins og greint hefur verið frá létust 22 manneskjur í árásinni og 59 manns slösuðust. Hann hljóp þá eins og fætur toguðu í átt að höllinni þar sem hann kom að hópi barna sem hafði lent í árásinni og voru alblóðug og grátandi. „Þau þurftu á hjálp að halda og ég kýs að trúa því að fólk myndi líka hjálpa mér ef ég myndi þurfa á henni að halda. Ég fylgdi bara eðlisávísuninni.“ „Ég hefði ekki getað lifað með sjálfum mér ef ég hefði gengið í burtu án þess að hjálpa þeim og skilið börnin eftir svona. Þó ég sé heimilislaus þá þýðir það ekki að ég sé hjartalaus og að ég sé ekki lengur mennskur.“ Hægt er að sjá viðtal við manninn hér að neðan. 'We had to pull nails out of children's faces': Steve, a homeless man who was sleeping near #Manchester Arena, rushed to help young victims pic.twitter.com/dyxzZpal0Q— ITV News (@itvnews) May 23, 2017
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Sjá meira