Porsche 718 frumsýndur Finnur Thorlacius skrifar 26. maí 2017 13:09 Porsche 718 Cayman verður frumsýndur á fjölbreyttri Sportbílasýningu Porsche hjá Bílabúð Benna á morgun, laugardag. Margt annað frá Porsche mun þó gleðja augað.
Hjarta sportbílaunnenda tekur kipp þegar sumarið gengur í garð. Nú er spennandi laugardagur í vændum; Bílabúð Benna, umboðsaðili Porsche á Íslandi, ætlar að fagna sumarkomunni með Porsche Sportbílasýningu. Það sem hæst mun bera er frumsýning á Porsche 718 Cayman. Þá mun eldri kynslóðum af Porsche 911 verða stillt upp á sýningarsvæðinu. Þannig gefst tækifæri til að skoða þessa goðsögn sportbílanna, Porsche 911, í sögulegu samhengi. Að sjálfsögðu munu líka nokkrir glæsilegir Porsche Macan, Cayenne og Panamera skarta sínu fegursta fyrir sýningargesti. Thomas Már Gregers, sölustjóri Porsche á Íslandi: „Við erum óhædd við að fullyrða að fátt geti jafnast á við ökuferð í Porsche á íslenskum sumardegi. Þá fá yfirburða eiginleikar bílsins að njóta sín við bestu skilyrði. Við ætlum sem sagt að framkalla Porsche fiðringinn, hinn eina sanna, á Sportbílasýningu Porsche.“ segir Thomas Már. Sportbílasýningin fer fram í Porsche-salnum, Vagnhöfða 23, laugardaginn frá kl. 12 til 16. Allir eru velkomnir.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent