Hætt við allar flugferðir British Airways Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 27. maí 2017 17:38 British Airways hefur ekki gengið vel í dag. Vísir/EPA
Breska flugfélagið British Airways hefur hætt við allar flugferðir sínar frá Heathrow og Gatwick flugvelli í dag vegna bilunar í tölvukerfum. Í tilkynningu frá flugfélaginu kemur fram að um meiriháttar bilun sé að ræða í tölvukerfum nokkurra alþjóðlegra flugfélaga. BBC greinir frá.Þetta þýðir að tafir eru á ferðum flugfélagsins víða um heim og sitja þúsundir farþega flugfélagsins því á flugvöllum og bíða eftir því að geta haldið leið sinni áfram. Bilunin hefur haft áhrif á vefsíðu flugfélagsins, smáforrit og þjónustumiðstöðvar. Flugfélagið getur því ekki séð með fullnægjandi hætti um bókun farþega eða innritun farangurs. Í tilkynningu frá flugfélaginu kemur fram að ekki sé um tölvuárás að ræða eins og haldið hafi verið fram í fyrstu. Félagið hefur í kjölfar vandræðanna í dag verið gagnrýnt fyrir bilunina og meðal annars hefur því verið haldið fram að ákvörðun félagsins um að gera samninga við þjónustufyrirtæki í Indlandi um uppihald bókunarkerfis og innritunarkerfi sé um að kenna. Flugfélagið hefur neitað því. Fúlir farþegar hafa tjáð sig um atvikið á Twitter og lýst yfir miklum pirringi vegna þess sem kallað er upplýsingaskortur af hálfu flugfélagsins.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Fleiri fréttir Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Sjá meira