Grænu bílarnir eru hjá Heklu 12. maí 2017 13:54 Mitsubishi Outlander PHEV selst tengiltvinnbíla best.
Mitsubishi Outlander PHEV er mest seldi tengiltvinnbíllinn á Íslandi það sem af er árinu 2017 en 22% allra tengiltvinnbíla sem seldir voru hér á landi fyrstu fjóra mánuði ársins voru af þeirri tegund. Bíllinn er reyndar líka mest seldi bíllinn á Íslandi sem gengur fyrir rafmagni og geri aðrir betur. Ekkert bílaumboð á Íslandi selur fleiri græna bíla en Hekla en mikill meirihluti allra vistvænna bíla sem seljast koma frá Volkswagen, Skoda, Audi og Mitsubishi. Hekla er einnig leiðandi í sölu metanbíla og er með 98,4% markaðshlutdeild í flokki þar sem Skoda Octavia og Volkswagen Golf bera höfuð og herðar yfir aðra tegundir.„Sem merki um aukinn áhuga á vistvænum bílum hafa biðlistar myndast eftir tengiltvinnbílum okkar frá Volkswagen, Mitsubishi og Audi,“ segir Jóhann Ingi Magnússon, sölustjóri Volkswagen hjá HEKLU.Hekla lætur sér þetta ekki nægja, heldur fagnar því líka að fyrstu fjóra mánuði ársins reyndist mest seldi sendibíllinn vera Volkswagen Caddy.Það er því óhætt að segja að bílarnir frá Heklu séu grænir og vænir.Audi A3 e-tron.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent