Breskur blaðamaður biðlar til Íslendinga í leit að húfu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 27. apríl 2017 10:55 Godfrey Hall, blaðamaður leitar nú aðstoðar Íslendinga Vísir
Breski blaðamaðurinn Godfrey Hall biðlar nú til Íslendinga í von um að geta nálgast 66° norður húfu sem hann segir að sé orðið að vörumerki sínu. Í bréfi sem Hall skrifaði til Velvakanda í Morgunblaðinu í dag segir hann að húfuna, sem seld var undir nafninu Katla, hafi hann keypt á ferð sinni til Íslands fyrir nokkrum árum.Godfrey skrifaði til Velvakanda í von um árangur.Hall, sem skrifar um ferðir og ferðalög, segir að húfan sé honum mikilvæg enda hafi hún „orðið einskonar vörumerki mitt á ljósmyndum sem teknar hafa verið víða um heim“. Ekki vildi betur til en svo að húfan týndist á dögunum og þegar Hall ætlaði að fjárfesta í samskonar húfu komst hann að því að hún er ekki lengur í framleiðslu. Biðlar hann því til Íslendinga sem kunni að hafa samskonar húfu í fórum sínum að athuga hvort að slík húfa geti leynst einhversstaðar í skápum eða skúffum, í von um að fá hana senda. „Húfan þarf að vera nákvæmlega eins og sú sem myndin sýnir en ekki skiptir máli hvort hún er ný eða notuð,“ skrifar Hall. Óskar hann eftir því að þeir sem finni slíka húfu og séu tilbúnir til þess að láta hana af hendi hafi samband við sig í gegnum tölvupóstfangið godfrey@godfreyhall.demon.co.uk.Í fyrstu útgáfu þessarar fréttar stóð að Hall væri bandarískur. Það er rangt, hann er breskur og hefur það nú verið lagfært. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.
Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira