Hinn ungi Julian Nagelsmann á leið með Hoffenheim í Meistaradeildina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. mars 2017 20:31 Julian Nagelsmann fagnar með lærisveinum sínum í kvöld. Vísir/AFP
Hoffenheim steig stórt skref í átta að Meistaradeildarfótbolta á næsta tímabili þegar liðið vann tveggja marka útisigur á Hertha Berlin, 3-1, í þýsku bundesligunni í kvöld. Hoffenheim kom með þessu upp í þriðja sætið í deildinni og upp fyrir Dortmund sem á reyndar leik inni. Hoffenheim náði líka átta stiga forskoti á Herthu Berlin sem er í fimmta sætinu. Fjögur efstu sætin gefa sæti í Meistaradeildinni, þrjú í riðlakeppninni en eitt í forkeppninni. Króatinn Andrej Kramaric skoraði tvö mörk í kvöld og er þar með kominn með tíu mörk á tímabilinu. Kramaric hefur skorað sjö markanna eftir að deildin hófst á ný eftir vetrarfrí. Það byrjaði ekki vel fyrir þegar Peter Pekarík kom Herthu í 1-0 á 32. mínútu en Andrej Kramaric jafnaði metin sex mínútum fyrir hálfleik. Niklas Süle kom Hoffenheim yfir á 76. mínútu og Andrej Kramaric innsiglaði síðan sigurinn þremur mínútum fyrir leikslok. Þjálfari Hoffenheim-liðsins er hinn 29 ára gamli Julian Nagelsmann en hann tók við liðinu í febrúar í fyrra þegar það var í sautjánda sæti deildarinnar. Hoffenheim bjargaði sér örugglega frá falli og hefur síðan verið í toppbaráttunni á hans fyrsta fulla tímabili.
Meistaradeild Evrópu Þýski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Sjá meira