Þjóðarsorg lýst yfir í Guatemala eftir að 21 unglingsstúlka lést í eldsvoða Gunnar Reynir Valþórsson og Hulda Hólmkelsdóttir skrifa 9. mars 2017 08:29 Þjóðarsorg ríkir nú í Guatemala. Vísir/EPA
Þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í Guatemala eftir að eldsvoði á upptökuheimili fyrir börn og unglinga varð tuttugu og einni unglingsstúlku að bana. Eldsvoðinn hefur varpað kastljósinu að heimilinu og því hvernig það var rekið af ríkinu, en lögregla segir að nokkrar stúlknanna hafi kveikt í dýnum sínum eftir að til uppþots kom á stofnuninni á þriðjudag. Stúlkurnar höfðu verið lokaðar af í hluta byggingarinnar af lögreglu þegar eldurinn gaus upp. Þá hafa verið settar fram ásakanir þess efnis að stúlkurnar sem dvöldu þar hafi verið misnotaðar. Fjörutíu til viðbótar slösuðust og þar af nokkrir alvarlega. Allar stúlkurnar sem létust voru á aldrinum 14 til 17 ára. Jimmy Morales, forseti Guatemala, lýsti því yfir að þjóðarsorg ríkti í landinu í kjölfar brunans. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu forsetans er verið að rannsaka eldsupptökin. Uppþotin á þriðjudag eru talin hafa orðið vegna kynferðisofbeldis sem stúlkurnar máttu þola og vegna slæmra aðstæðna og matarskorts. „Þetta var tifandi tímasprengja. Það mátti búast við þessu,“ sagði Angel Cardenas, fyrrverandi starfsmaður heimilisins, í samtali við AFP.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Sjá meira