Miðasala hafin á The Color Run - Einnig hlaupið á Akureyri Stefán Árni Pálsson skrifar 23. febrúar 2017 13:00 Litadýrðin er mikil í The Color Run.
Í dag hófst miðasala í The Color Run by Alvogen litahlaupið sem fram fer í miðbæ Reykjavíkur laugardaginn 10. júní. Að þessu sinni verður litahlaupið líka á Akureyri og fer hlaupið fram þann 8. júlí norðan heiða, sömu helgi og N1 mótið og Pollamótið fara fram. „Það er okkur mikil ánægja að geta haldið The Color Run by Alvogen á Akureyri í ár. Undanfarin ár hefur það því miður ekki staðið til boða vegna þess að búnaðurinn sem kemur hingað til lands vegna hlaupsins hefur jafnan þurft að fara í notkun í Danmörku strax eftir hlaupið en í ár fáum við að hafa búnaðinn lengur til að fara með hann norður og er það mikið ánægjuefni enda hefur verið eftirspurn fyrir því að The Color Run sé haldið á norðurlandi. Við stefnum á að halda stórkostlegt litahlaup á Akureyri í sumar og vonandi sjá sér flestir fært að mæta og taka þátt í gleðinni,” segir Davíð Lúther Sigurðarson, framkvæmdastjóri The Color Run á Íslandi.Miðasala hafinThe Color Run viðburðurinn hefur verið haldinn síðastliðin tvö ár í Reykjavík og hefur verið uppselt í hlaupið bæði skiptin með á milli 10 og 12.000 þátttakendum í hvort sinn. Miðasala hófst í dag á midi.is og það gæti borgað sig að kaupa miða í tíma, ekki aðeins til að tryggja sér miða heldur einnig vegna þess að veittur er umtalsverður afsláttur eftir því hversu fljótt miðar eru keyptir í hlaupið. Á hverju ári er ákveðið þema í litahlaupinu og í ár er þemað kallað Dream Tour um allan heim. Litahlaupið er stærsta viðburðasería í heimi með meira en 300 hlaup árlega í meira en 200 borgum í 60 löndum víðsvegar um heiminn. Enginn annar viðburður státar af jafn mikilli dreifingu og The Color Run í heiminum.
Mest lesið Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi Lífið Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lífið Sögufrægt verslunarhús til sölu Lífið „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Lífið Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Lífið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Sjálfið okkar: Þynnkan eftir mannamót (samt drakkstu ekki neitt!) Áskorun Allir og amma þeirra mættu í þjóðbúningi Tíska og hönnun Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Lífið Fleiri fréttir Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Sjá meira