Fer fram á að ákvæði um sameinað Írland verði í Brexit samningnum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. febrúar 2017 18:19 Enda Kenny, forsætisráðherra Írlands, ásamt Jean Claude Juncker, forseta framkvæmdastjórnar ESB. Vísir/EPA
Forsætisráðherra Írlands, Enda Kenny, hefur lýst yfir þeirri skoðun sinni á fundi með forsvarsmönnum Evrópusambandsins í Brussel, að setja eigi inn ákvæði í Brexit samninginn, sem gerir ráð fyrir þeim möguleika að Norður-Írland og Írland sameinist. Guardian greinir frá. Forsætisráðherrann vill þar með tryggja að fari það einhverntímann svo, að Norður-Írland muni sameinast Írlandi, verði það auðveldara fyrir Norður-Írland að verða hluti af Evrópusambandinu á nýjan leik eftir sameiningu. Tók hann dæmi um sameiningu Austur-Þýskalands og Vestur-Þýskalands, þegar austurhluta landsins var auðveldað að ganga inn í Evrópusambandið um leið og löndin tvö sameinuðust. Þá segir Kenny einnig að það sé mikilvægt að stjórnskipulag Norður-Írlands sé haft með í ákvæðum samningsins. „Með öðrum orðum að í framtíðinni, hvenær svo sem það verður, ef að verður af sameiningu, að þá geti norðurhlutinn gengið inn í Evrópusambandið vandkvæðalaust. Við viljum að þetta orðalag verði haft með í samningnum.“ Á sama tíma sagði Jean Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar ESB, á sameiginlegum blaðamannafundi þeirra tveggja, að hann teldi mikilvægt að ekki yrði horfið til þess tíma þegar rammgerð landamæri voru á milli ríkjanna tveggja á eynni. Hann lagði áherslu á það að landamærin yrðu eins opin og mögulegt er. Kenny tók fram að ríkisstjórnir Bretlands og Írlands væru báðar sammála um það að hafa ætti landamærin á eyjunni eins opin og mögulegt er. Hann sagðist ekki telja að svo yrði ekki en taka þyrfti með allar mögulegar breytingar í utanríkismálum í framtíðinni með í reikninginn. Ákvæði um sameiginlegt Írland væri skref í þá átt.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Sjá meira